Faxi - 01.10.1986, Síða 37
Þann 4. júlí sl. ræsti iðnaðarráð-
herra Albert Guðmundsson eima
Sjóefnavinnslunnar, að viðstödd-
um blaðamönnum og nokkrum
gestum.
Stjórn verksmiðjunnar hafði
gert sér ljóst að fleira þyrfti að
koma til en saltframleiðsla til að
tryggja áframhaldandi starf-
rækslu verksmiðjunnar.
Nánari athuganir leiddu í ljós að
framleiðsla kolsýru og þurrís gat
Iðnaðarrádherra Albert Guðmundsson hefur nýlokið við að rœsa gufueima Sjöefnavinnslunar h.f. á Reykjanesi.
Hér rœðir hann við stjórn fyrirtœkisins. Að baki hans stendur Páll Flygenring, ráðuneytisstjóri. Síðan stjórnarmenn
Sjóefnavinnslunnar þá Gunnar Sveinsson, Guðmundur Malmquist, stjórnarformaður, bak við hann stendur Halldór
Ibsen, Björgvin Gunnarsson og Magnús Magnússon, framkvœmdastjóri.
Sjóefnavinnslan eykur starfsemi sína
best farið saman með saltfram-
leiðslunni. Kolsýruframleiðslan
byggir á því að eftir beislun guf-
unnar og þéttingu hennar, falla til
gös, sem eru að 97 hlutum kol-
sýra 2,7 brennisteinsvetni og 0,3
köfnunarefni. Kolsýruna þarf að
hreinsa og fjariægja þarf brenni-
steinsvetni. Henni er síðan þjapp-
að saman í fljótandi form og
geymd í tönkum. Þurrísinn er
ffamleiddur úr fljótandi kolsýru,
en þurrísinn er fast efni kolsýr-
unnar og virkar á svipaðan hátt og
vatnsís að öðru leyti en því að
þurrísinn gufar upp og skilur ekki
eftir sig vökva. Yfirborðshiti íss-
ins er -78°C.
Framleiðsla og markaðssetning
Utan við mannvirkið rœðast menn við og skoða landslagið. Halldóri Ibsen er
mikið niðri fyrir í viðrœðum við Albert — vœntanlega að tjá honum auðœfi í
iðrum Reykjanesskaga sem nýtast mœttu til iðnaðarframkvœmda.
Er sólin kveöur
Bœrist á bárum
báturinn veiki.
Lognaldan Ijómar
í leiftrum sólar,
er hógiega hnígur
að hafsins baki
og kveður fold
með kœrleiks brosi.
,,Hvíli ég mitt höfuð,
hvíldar er ég þurfti
að loknum löngum
lýjandi degi.
Býð ég ykkur eins,
börnum jarðar
öllum að hvílast
og augum loka.“
Ingvar Agnarsson
salts og kolsýru fer vel saman og
mun leiða til mun lægri fram-
leiðslukostnaðar. Núverandi
mannvirki SEV nýtast vel til þess-
arar framleiðslu og hægt verður
að koma við samnýtingu sem
lækkar ýmsa aðra kostnaðar-
þætti, svo sem kostnað við yfir-
stjórn, vélgæslu, mötuneyti,
dreifingu og markaðssetningu.
Við framleiðslu Sjóefnavinnsl-
unnar fellur til kisl, sem hægt er
að framleiða úr heilsubætandi
áburð. Gerðir hafa verið samning-
ar við Isaga hf. sem mun dreifa
kolsýru fýrir Sjóefnaverksmiðj-
una. Einnig hafa verið gerðir
samningar við Medis sem er sam-
eignarfyrirtæki Pharmaco og
Delta um markaðssetningu kisl-
innar og lofa tilraunir góðu um
áhrifamátt lyfsins við húðsjúk-
dómum. Að taka geymana í notk-
un er liður í að auka saltfram-
leiðsluna úr 1700 tonnum í 8 þús.
tonn, en þróunin í fiskverkun hef-
ur snúist á sveif með sjóefna-
vinnslunni með þeim hætti að
verkun tandurfisks hefur aukist
verulega, en salt frá verksmiðj-
unni er sérstaklega heppilegt til
þeirrar verkunar vegna hrein-
leika.
Einnig hefur verið höfð sam-
vinna við Isno, S.H. og fleiri til að
kanna hagkvæmni fiskeldis, sem
mundi byggjast á umframorku frá
Sjóefnavinnslunni. Aðalfundur
Sjóefnavinnslunnar verður síðan
haldinn í lok september þar sem
þessi mál verða skýrð náðar.
G.Sv.
FAXI 241