Faxi - 01.10.1986, Qupperneq 39
það seinna um sumarið, að skip
kom til Bíldudals, en þar þekkti
ég 2 menn, og var annar þeirra
vélstjóri. Nú vildu margir eiga
mig að, og ferð mín um borð end-
aði með því að ég kom klifjaður til
baka, og fyrsti maðurinn sem ég
mætti á bryggjunni var sá 60 ára
gamli. Og þá kom uppí mér sú
árátta að gefa. Því þó ég segi sjálf-
ur frá, þykir mér gaman að gefa.
Ég sagði þeim 60 ára að ég ætlaði
að gefa honum eina bokku fyrir
greiða, sem hann hefði gert mér
og félögum mínum fyrir 33 árum.
Hafi ég séð manni bregða, þá sá ég
það núna. Hann reyndi að stynja
upp einhverjum sundurlausum
orðum, án þess að átta sig á hlut-
unum. Að lokum bað hann mig að
skýra þetta nánar. Þá sagði ég
honum alla söguna. Hann sagðist
muna þetta vel, en jafnframt að
hann hafi verið því andvígur að
fara svona að. Ég spurði hvort
engin mjólk eða harðfiskur hafi
verið til. Jú, það var nógur matur
til, en það var allt með sama svip,
og öðruvísi en ég vildi. Að lokum
bað hann mig að fyrirgefa sér og
þeim öllum sem í eyjunni bjuggu.
Auðvitað var ekki um annað að
ræða, enda mér löngu runnin
reiðin. Við ræddum lengi um
þetta, meðal annars sagði hann að
gestrisni hafi verið talin ein helsta
dyggð eyjabúa, og það hafði mað-
ur heyrt oft, og einnig hafði mað-
ur lesið um það i bókum.
Um 20. september, eða á réttar-
daginn, var lokið að mestu við
múrverkið í skólanum, og þá var
mér fenginn reisupassinn.
Ég eignaðist þama marga kunn-
ingja, og ennþá höldum við þeim
kunningsskap, en nú eru nokkrir
farnir yfir móðuna miklu, og hjá
okkur hinum smá styttist spott-
inn.
Af þessum línum má lesa að oft
er í holti heyrandi nær. Það er
ekki trúlegt að þessi gamli eyjabúi
hefði farið að segja þessa hreysti-
sögu af sér og sínum sambýlis-
mönnum, ef hann hefði rennt
grun í að einn þolendanna væri
þarna staddur. En veröldin er
ekki alltaf stór og víða liggja vega-
mót.
Þegar ég kom heim um haustið
frá Bíldudal, var það mitt fyrsta
verk að hringja í síma til Ágústs
Snæbjörnssonar, og segja honum
þessa sögu. Honum var skemmt,
en sagði samt að þetta hefði hann
vitað, enda hafði annað ekki kom-
ið til. Þriðji félaginn, Þorsteinn
Þórðarson, var þá látinn fyrir
nokkrum árum.
Við samantekt þessa þcíttar hcfi
ég stuðst vid dagbókarbrot og eig-
ið minni.
Ritað í mars 1983.
ÍBÚÐIR FYRIR
UNGA FÓLKIÐ
AÐ BREKKUSTÍG 33 í NJARÐVÍK
Mjög hagstæðir skilmálar:
2ja herbergja íbúðir 70 m2 .................. kr. 1.650 þús.
3ja herbergja íbúðir 90 m2................... kr. 1.850 þús.
3ja herbergja íbúðir 86 m (endaíbúð)........ kr. 1.880 þús.
ATH.: Allar íbúðir með sér þvottahúsi.
Dæmi um hugsanleg
greiðslukjör:
Dæmi um hugsanleg
greiðslukjör:
2ja herb. íbúð 70 m2
Við undirritun kaupsamn. 200 þús.
Með húsnæðisláni ... 1.300 þús.
Með mánaðarl. greiðslum
á 12 mán. (12.500) .. 150 þús.
Samtals 1.630 þús.
3ja herb. íbúð 90 m2
Við undirritun kaupsamn. 200 þús.
Með húnæðisláni .... 1.300 þús.
Með mánaðarl. greiðslum
á 17 mán (20.588) ... 350 þús.
Samtals 1.850.000
AUK ÞESS BJÓÐUM VIÐ
glæsilega 2ja herbergja íbúð í sexbýlishúsi með
mikilli sameign að Mávabraut 1 Keflavík.
BYGGINGARAÐILI:
Hilmar Hafsteinsson
Sími 1303
SÖLUAÐILI:
Fasteignasalan
Hafnargötu 27 - Sími 1420
FAXI 243