Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 27
FAXl JÓLÁItliAII 20011
Sleitulaust í 60 ár
Faxi hefur nú komið út sleitulaust í 60
ár. Fyrsta blaðið mun hafa litið dagsins
Ijós þann 21.desember 1940, í skugga
stríðsástands í Evrópu og margvíslegra
erfiðleika hér heima á Fróni. Það var
Valtýr Guðjónsson, síðarheiðursborgari
Keflavíkurbæjar, sem fylgdi blaðinu úr
hlaði. Markmið ffumherjanna í Mál-
fundafélaginu Faxa voru skýr, en fé-
lagið hafði starfað í eitt ár og vildu þess-
ir eldhugar upplýsa Suðumesjamenn
um þau mörgu menningar- og fram-
faramál sem í raun var verið að vinna að
á Suðumesjum, blaðið skyldi vera upp-
lýsandi og ópólitískt. Síðan þá hefur
Faxi verið ótæmandi sagnabrunnur um
málefni okkar og mikilvæg heimild
síðari tíma sagnaritunar.
Þegar ég fæðist á Sjúkrahúsi Kefla-
víkur og er að slíta bamsskónum á Sól-
vallagötu 2, þar sem nú er Bókabúð
Keflavíkur var Faxi orðinn stálpaður
unglingur. Umhverfið var þá talsvert
annað við Tjarnargötutorg, lítil og
lágreist hús þar sem nú em aðalstöðvar
Sparisjóð Keflavíkur og Reykjanes-
Skúli Þ Skúlason
bæjar svo dæmi sé tekið. Fyrstu kynni
mín af Faxa, eins og svo margra krak-
ka í Keflavík, var í gegnum sölu blaðs-
ins. Við krakkamir höfðum svo sern
engan sérstakan áhuga á innihaldi
blaðsins á þessum tíma. Umbunin vom
sölulaunin sem oftar en ekki enduðu í
Kristínarbúð. Trú blaðstjómar við upp-
mna sinn kenndi mér síðar að meta
mikilvægi Faxa. Umfjöllun um skóla-
málin, æskulýðsmálin, sveitarstjómar-
málin, frásagnir af fólki og merkileg-
um viðburðunr hafa hjálpað lil að gera
okkur stolt og áhugasömum um það
samfélag sern við eigurn rætur í.
Sjálfsagt er það erfitt í því „tjöl-
miðlafári" sem einkennir nútímann að
halda úti tímariti eins og Faxa, sem lík-
lega er orðið eitt elsta tímarit landsins.
Þó hafa fastir liðir eins og rnyndir af
feiTningarbömum og útskriftamemum
Fjölbrautaskólans ávallt vakið eftir-
væntingu og sjálfsagt á hlutlaus um-
fjöllun blaðsins um samtímann ein-
hvern þátt í því að blaðið hefúr haldið
velli og á vonandi effir að gera um
ókomna tíð.
Á þessum tímamótum færi ég Faxa-
félögum, sem í gegnum áiin hafa veiið
leiðtogar úr ólíkunr áttum, bestu kveðj-
ur, mér er ofarlega í huga þakklæti til
þeirra fyiir elju og úthald við að skerpa
á samkennd í samfélagi okkar hér suð-
ur með sjó.
Skúli Þ Skúlason
Breytingar í Bílakringlunni
Bílanaust í Keflavík
Nú nýlega hafa orðið töluverðar breytingar á rekstri
Bílakringlunnar. Bflabúðin ehf, sem varð til fyrir
tveimur ámm við sameiningu varahlutaverslunar
Stapafells og varahlutaverslunar BG Bflakringlunnar
ehf hefur nú selt varahlutaverslunina til Bílanausts
ehl. Bflanaust er gamalgróið og landsþekkl fyrirtæki
sem hefur á undanfórnum árum opnað útibú víða urn
landið. Er ekki vafi á því að hin glæislega varahluta-
verslun í Keflavík sómir sér vel í Bílanaustskeðjunni.
Hjólbarða- og
þjónustuverkstæði
Bflabúðin ehf rekur áfram þjónustuverkstæði og hef-
ur nú keypt Hjólbarðaverkstæði BG Bflakringlunnar
ehf. Hjólbarða- og þjónustuverkstæðið er með þjón-
ustuumboð fýrir Renault, BMW, Huyndai, Suzuki,
Kia, Musso og Daewo en býður jafnframt uppá þjón-
ustu við allar aðrai' gerðir bifreiða. Hjólbarðaverkstæðið
annast allar hjólbarðavðgerðir og þar em einnig hjól-
barðar til sölu.
Þvottastöðin Bónco
BG Bílakringlan ehf rekur þvottstöðina Bónco og
býður bæði uppá þjónustu við þvott, bónun og þrif á
bflum. Þar er jafnframt rekin svokölluð sjálfsþjón-
ustu, þ.e.viðskipta-vinurinn getur valið um hvoil hann
lætur þvottastöðina sjá um að gera bflinn fínan eða sjá
urn verkið sjálfur. I þvottastöðinni er góð aðstaða í
hlýju og björtu húsnæði.
Bílaleiga BG
I Bílakringlunni er einnig rekin bflaleiga þar sern
hægt er að leigja bfl á góðu veiði.
HH
Það er bjart og hlýtt inni hjá Bonco, þótt úti sé
snjómugga. Ljósm. Faxi/HH.
FAXI 75