Faxi - 01.12.2000, Page 32
Að lokinni teiknisamkeppninni þar sem greinarhöfundur fékk önnur til þriðju verðlaun. Hver dómari fékk koparplö-
tu og lagði hana á þá mynd sem hann valdi sem besta. Ljósm. Fjóla Ólafsdóttir.
mismunandi löndum á alla vegu. Ég
sagði henni reyndar að Island væri lík-
lega í tveim heimsálfum, Ifkt og Tyrk-
land, þar sem það væri á miðjum Atl-
antshafshryggnum sem skilur að Evr-
ópu og Ameríku.
Tyrkland hefur, á síðari hluta tuttug-
ustu aldar, átt landamæri að ríkjum í
þrem heimshlutum; Sovétríkjunum,
Evrópu og Arabíu. Fjögur höf liggja að
landinu; Svartahaf að norðan, Miðjaið-
arhaf að sunnan og Marmarahaf og
Eyjahaf að vestan. Víða við strendur
landsins, td. við Eyjahaf, Miðjarðarhaf
og austanvert Svartahaf, eru glæsilegar
sólarstrendur og mun ódýrari gistiað-
staða en þekkist annarsstaðar.
Grímulaust samfélag
Verðbólgan í landinu er að jafnaði
um sextíu prósent á ári. Og þótt stórt
bjórglas á flottu veitingahúsi kosti
kannski 300 000 tyrknesk pund, þá er
það innan við sextíu krónur íslenskar.
Verðlag á dýrum varningi, t.d. tölvum,
er því gefið upp í dollurum í verslun-
argluggum.
Flestir íbúanna búa við Marmara-
haf, þar sem Istanbul er, eða á vestur-
ströndinni við Eyjahaf. Ekki veit ég
hvernig daglegu lífi er háttað þar, en í
Ankara má stundum sjá táningastráka
labba saman með handleggina hvor
yfir annars öxl eins og maður gæti
hugsanlega séð sex, sjö ára stráka gera
hér á landi. Þeir eru bara svona ein-
lægir og algerlega lausir við grímu
töffaraskaparins.
Áður en ég fór frá Ankara átti ég
ánægjulegt spjall við Nezhi Danyal,
skipuleggjanda skopmyndahátíðarinn-
ar á listahátíðinni.
„Fólk á Vesturlöndum virðist stund-
um líta okkur hálfgerðu hornauga,"
sagði hann. .T’að heldur að hér búi ein-
tómir múslímar og misyndismenn. I
opinbemm skýrslum er sagt að nteira
en 95% tyrknesku þjóðarinnar séu
múslímar en það er einfaldlega ekki
rétt. Hér er reiknað með að fólk venði
múslímar við fæðingu. Það er svipað og
hjá ykkur á Norðurlöndum, nema hvað
þið eigið víst að vera Lútherstrúar um
leið og þið fæðist.“ Og þegar betur er
aðgáðkemur í ljós að Tyrkland er ólíkt
öðrum löndum múslíma. Hér standa
moskurnar tómar. Aftur á móti eru hér
nokkrar glæsilegar kirkjubyggingar
eins og td. Soffíukirkjan í Istanbul."
Hann sneri sér að norrænni konu,
sem sat hjá okkur í sandölum og stut-
tu pilsi, og sagði við hana:
„Hvemig líst ykkur á að skoða fal-
lega mosku hér í nágrenninu? Þið get-
ið farið eins og þið emð.“
Konan var á báðum áttum, en við
fómm samt inn í moskuna; gríðaiiega
mikla byggingu með glæsilegu hvolf-
þaki og háum turnspírum. Þegar inn
var komið blasti við okkur furðuleg
sjón. Moskunni hafði semsé verið
breytt í geysimikla verslunarmiðstöð
með matvöruverslun á neðri hæðinni
og öðmm verslunum á efri hæð. Þar
keypti ég mér sparibuxur fyrirfimm
Greinarhöfundur fylgLst með frægum , enskum tciknara sem gerði það að ganni sínu að teikna skopmyndir á
tauservéttur í einu af þeim fjölda boða sem farið var í meðan á listahátíðinni stóð, Ljósm. Fjóla Ólafsdóttir.
80 FAXI