Faxi - 01.12.2000, Qupperneq 42
FAXI JÓLAitLAI) 2(100
Jólin í fyrri daga
GUÐBJÖRG JÓNSDOTTIR HÚSFREYJA Á BRODDANESI Á STRÖNDUM
Gömul kona, sem ólst upp hjáfátœkum foreldrum
sínum í nánd við foreldra mína, hefur sagt mér
að einu sinni fyrir jólin hafi móðirsín œtlað að fara
að sjóða reykt selkjöt til jólanna, en þá hafi einn af
vinnumönnum foreldra minna komið með hemgikjöt og
fleira sœlgœti, og svo ógleymanlegu kertin. Mikil
gleði sagði hún að þá hefði verið í litla kotbœnum.
Úr endurminningabók Guðbjargar
Gamlar glæður, þættir úr daglegu lífi á
Ströndum á síðari hluta 19. aldar.
Helgi Hjörvar bjó til prentunar en
ísafoldarprentsmiðja h.f. gaf út.
Nokkru fyrir jólin lét móðir mín
steypa mikið af kertum. Þann dag fór
hún snemma á fætur til þess að tvinna
rökin. Þau voru úr ljósagami. Þann
morgun þótt mér mjög gaman að vakna
í rúminu fyrir ofan móður mína, sjá
hana tvinna rökin og láta þau á kerta-
spýtumar. Þá fannst mér ég vera stödd
í fordyri jólahátíðarinnar. Rökin vom
látin á mjóar spýtur, tvö og þrjú á hver-
ja, og stundum fleiri, eftir því hvað
spýtan var löng. Þegar farið var að stey-
pa, vom tvær árar látnar á kláfa í eld-
húsinu, þar á milli var svo kertaspýtun-
um raðað. Svo var strokkurinn látinn á
gólfið hjá ámnum og skorðaður með
gijóti, síðan hellt í hann heitu vatni og
tólg. Þá var rökunum dyfið ofan í, en
þess á milli látið kólna á spýtunum.
Þetta var endurtekið þangað til kertin
vom orðin nógu gild.
Móðir mín átú kertaform, en það var
ekki notað, nema þegar lítið þurfti að
steypa. Oftast var verið nærri allan dag-
inn að steypa kertin. Móðir mín þurfti
mikið á kertum að halda, hún var örlát á
þau, eins og annað. Öllum unglingum á
heimilinu gaf hún kerti, þegar steypt
var. Ég man hvað mér þótti vænt um
litla kertið mitt, það var svo bjart á því
ljósið. En skammdegismyrkrið í gamla
bænum var svo svart og svo langt. Fyr-
ir jólin var baðstofan þvegin og allt
hreinsað og prýtt. Askar, dallar og öskj-
ur var þvegið upp úr hangikjötssoði.
A fyrri ámm höfðu foreldrar mínir
gefið fátæku fólki, sem nálægt þeim
var, gjafir fyrir jólin, matvæli og fleira.
Kerti vom send til fátækra bama í
sveitinni. Gömul kona, sem ólst upp
hjá fátækum foreldrum sínum í nánd
við foreldra mína, hefur sagt mér að
einu sinni fyrir jólin hafi móðir sín ætl-
að að fara að sjóða reykt selkjöt til jól-
anna, en þá hafi einn af vinnumönnum
foreldra minna komið með hangikjöt og
fleira sælgæti, og svo ógleymanlegu
kertin. Mikil gleði sagði hún að þá hefði
verið í litla kotbænum.
Ekki vom jólin áður gerð dýrleg með
kökubakstri eins og nú er siður. Þá var
ekki annað búið til með kaffinu en
lummur úr sigtuðu grjónamjöli og
kleinur og pönnukökur úr sigtuðu rúg-
mjöli.
Allir höfðu fataskipti á aðfangadags-
kvöld og þvoðu sér. Þeir sem vildu þvo
eitthvað meira en hendumar og andlit-
ið, fóm út í ijós, þar var hlýjast að vera
við þvottinn. En ekki má skilja orð mín
svo, að fólkið hafi ekki þvegið sér nema
á jólunum. Það þvoði sér oft og greiddi,
eftir bestu vitund, og sumar stúlkur
höfðu mikið hár, þá þótti það prýði.
Mikið hlakkaði ég til aðfangadags-
kvöldsins. Þá fékk ég að fara í bestu
fötin sem ég átti til, og mér fannst ég
vera ákaflega fín, en um það hugsaði ég
mikið. Þegar búið var að kveikja og all-
ir höfðu haft fataskipti, fór móðir mín
fram í stofuloft til að sækja kertin. Hún
gaf öllum á bænum tvö kerti, eins fólk-
inu á búi systur minnar. Síðari árin var
hér tvíbýli. Faðir minn fékk tvö kerti
eins og aðrir, þó að hann væri blindur.
Ég man hvað hann var sviphýr, þegar
hann var að handleika kertin, sem móð-
ir mín gaf honum.
Þegar allir vom búnir að fá kertin,
fjölgaði ljósunum í baðstofunni. Nú
vom blessuð jólin komin. Sumt fólkið
kveikti á kerti og fór að lesa í bók. Aðr-
ir tóku skrifpúltin sín og fóm að lesa.
Nú höfðu allir nóga birtu, nema faðir
minn. Þó var enginn glaðari en hann.
Verið getur að hann hafi einhverstaðar
átt stærra ljós en við hin. Lýsislampinn
í dyrastafnum hætti nærri að bera birtu,
kóngakertin á borðinu yfirgnæfðu birtu
hans. Ljósafjöldinn hefur vafalaust
mikið stuðlað að því að gera jólin svo
dýrðleg sem þau vom í huga manna.
Þessi smáljós, sem lýstu í lágum híbýl-
um dauðlegra manna, minntu á stóra al-
heimsljósið: bamið í jötunni.
Húslestrar vom þá engin nýjung. Þó
fannst mér eitthvað meira við jóla-
lestrana en vanalegt var. Þá var miklu
meira sungið, og allir sungu, sem söng-
rödd höfðu. Ráðsmaðurinn var for-
söngvarinn, hann söng laglega, en fátt
kunni hann af nýjum lögum. Oftast var
byrjað á þessum sálmi: Þjer, mikli guð,
sje mesti pris! Vor mildi guð! vjer
þökkum þjer, o.s.frv., eða jólasálmin-
um: Með gleðiraust og helgum hljóm. I
Ekki vom sungnir færri en fjórir sálm-
ar, tveir fyrir og tveir eftir, stundum
meira. A meðan faðir minn las og söng
sjálfur, hafði hann sungið fjórtán sálma
á aðfangadagskvöldið. Það er minna nú
á dögum.
Skemmtanir vom engar á jólakvöld-
ið, nema að lesa í bókum, og var fólkið
að mestu leyti sjálfrátt um hvað það las.
Móðir mín las í Biblíunni fyrir
90 FAXI