Frjáls verslun - 01.08.2004, Síða 10
RITSTJÓRNARGREIN
HVAÐ ER ISLENSKT FYRIRTÆKI?
„Gæti ég fengið að heyra..."
FYRIR NOKKRUM ÁRUM lenti ég í skemmtilegum rök-
ræðum um hvað væri „íslenskt fyrirtæki". Þetta kom til af þvi að
verið var að semja um hefðbundna sjóflutninga fyrir Vamarliðið
og fyrr en varði hljómaði „íslenskt fyiirtæki" í hverjum frétta-
tímanum af öðrum. Utanríkisráðherra varð sérstaklega tíðrætt
um það. Enda erum við íslendingar mjög stoltir af íslenskum
fyrirtækjum. Aðeins þau mega veiða fiskinn í kringum landið
og að sjálfsögðu verða þau að fá sinn skerf af siglingum fyrir
Vamarliðið.
LENGI VEL höfðu íslenskir aðalverktakar einkarétt á að
byggja fyrir Vamarliðið. Það vom engin útboð. Verkið var Aðal-
verktakanna. Og svo rosalega íslenskii' vom Aðalverktakamir að
enginn fékk að sjá ársreikning fyrirtækisins. Farið var með hann
sem mannsmorð. Sagan sagði að aðeins þrjú eintök væm til af
ársreikningnum; eitt fyrir skattinn, annað fyrir stjóm fyrirtækisins
og það þriðja fyrir endurskoðandann. Enginn fékk að vita af
gróðanum af hermanginu. En þetta var þá.
Það em breyttir tímar. Núna em Islenskir
aðalverktakar (ÍAV) framsækið bygginga-
fyrirtæki sem kemur víða við sögu úti um
allt land. Þeir verða núna að beijast um
verkefnin við aðra - og að sjálfsögðu er lítið
mál að fá ársreikning þeirra og tölur birtar
á lista okkar yiir 300 stærstu fyrirtækin.
Eftir stendur samt hin skemmtilega umræða um það hvað
sé „íslenskt fyrirtæki". Algengasta svarið er: Fyrirtæki sem er í
eigu íslendinga, skráð á íslandi og stjómað af Islendingum! En
hvað ef starfsmennimir vinna allir erlendis, viðskiptavinimir em
allir útlendingar og ekki einu sinni töluð íslenska í fyrirtækinu?
Er fyrirtækið þá ekki bara íslenskt að naihinu til?
„ÍSLENSKA BLÓÐIГ er augljóslega að minnka í stærstu
fyrirtækjum landsins. Þijú stærstu fyrirtækin, SH, SIF og KB-
banki, hafa öll yfir sér alþjóðlegan blæ. Flestir starfsmenn SH og
SÍF em útiendingar því .Júnksjónir" þessara fyrirtækja em fyrst
og fremst erlendis. KB-banki er orðinn svolítið sænskur í sér eftir
að hann var skráður í Kauphöllinni í Stokkhólmi og Svíar komu
inni í hluthafahópinn. Bankinn starfar þó í mörgum löndum.
Actavis Group er það íslenska fyrirtæki sem er með flesta í
vinnu, eða 6.539 manns. Aðeins lítill hluti þeirra er íslendingar.
Starfsmenn Actavis Group em allra þjóða, langflestir búlgarskir.
Bakkavör Group er sterkt matvælafyrirtæki erlendis og hefur
látið til sín taka á Bretlandi eftir að hafa keypt matvælafyrirtæki
þar. Útlendingar setja æ meiri svip á hluthafahóp Össurar og allir
vita að Össur væri hvorki fugl né fiskur hefði hann ekki hleypt
heimdraganum og keypt öflug stoðtækjafyrirtæki erlendis.
Baugur Group gengur ekki lengur út á að selja íslendingum
matvæli, þótt fyrirtækið sé stærsti eigandinn, með þriðjungshlut
í Högum sem reka Bónus, Hagkaup, 10-11 og fleiri verslanir.
Baugur Group er núna ijárfestingarfélag, (eignarhaldsfélag),
sem leggur mesta áherslu á að kaupa í breskum smásölu-
fyrirtækjum. Það á eignir í Bretlandi og á Islandi. Rúmlega 9,3
milljarða króna hagnaður Baugs Group í fyrra varð til í Bretlandi.
Hagnaðurinn er fyrst og fremst „óinnleystur gengishagnaður“
af hlutabréfum þar. Alcan á íslandi hf. er í eigu údendinga. En
í hugum íslendinga er það bara Alverið í Straumsvik. Það er
„íslenskt fyrirtæki" í að mati flestra. Skráð á íslandi, verksmiðj-
umar em á Islandi og starfsmennimir em íslenskir.
ÚIRÁS ÍSLENDINGA í viðskiptum hefúr breytt eðii lista
Fijálsrar verslunar yfir 300 stærstu fyrirtæki landsins. Blóðið
er ekki eins íslenskL Það einkennir listann hvað stærstu fyrir-
tækin em sókndjörf erlendis og hafa fengið á sig alþjóðlegan
blæ. Uppspretta hagnaðarins er í æ ríkara
mæli í útlöndum og aldrei áður hata sést
svo svimandi háar tölur um hagnað á list-
anum, en hann má að talsverðu leyti rekja
til gengishagnaðar af hlutabréfaviðskiptum.
Samþjöppun og sameiningar hafa gjörbreytt
listanum. Stærstu fyrirtækin verða sífellt
stærri. Munurinn á 25 efstu fyrirtækjunum á
listanum og 25 neðstu hefur aldrei verið svo mikill. Mesti vöxtur-
inn er á sviði fjármála. Fimm af sex fyrirtækjum, sem juku veltu
sína mest á síðasta ári, vom ijármálafyrirtæki. Núna þykir það
ekkert tiltökumál að segja frá yfir 6 miiljarða hagnaði fyrstu sex
mánuði ársins, eins og Islandsbanki, Landsbanki og KB-banki
hafa gert Fyrir nokkmm ámm þorðu menn ekki að flíka miklum
hagnaði.
Útrásin er engan veginn að baki. Nýlega sameinuðust Burðarás
og Kaldbakur í þeim tilgangi að búa til ofurafl í flárfestingum
- sem léti ekki síst að sér kveða í fjárfestingum erlendis. Margir
spá því líka að Straumur og Burðarás eigi eftir að renna saman í
eina sæng - þótt það sé borið til baka - sem og Landsbankinn og
íslandsbanld. Telja verður frekar hæpið að Samkeppnisstofnun
gefi grænt ljós á sammna Landsbanka og Islandsbanka.
ÞÓTT ÍSLENSK FYRIRTÆKI séu ekki eins íslensk og
áður háir það okkur ekki við að stiila upp listanum yfir 300 stærstu
íslensku fyrirtækin. Hins vegar er mun auðveldara að meta þetta
séríslenska á öðmm sviðum þjóðlífsins, td. þar sem tungumálið
leikur stærra hlutverk. Eða hversu íslenskt er þetta: „Gæti ég
fengið að heyra eitthvað íslenskt eitthvað gamalt og gott“?
Jón G. Hauksson
/
Islenskt fyrirtæki?
En hvað ef starfsmennimir
vinna allir erlendis, viðskipta-
vinimir em allir útlendingar
og það er ekki einu sinni
töluð íslenska í fyrirtækinu?
10