Frjáls verslun - 01.08.2004, Qupperneq 121
ÞORBJÖRN FISKANES EIRÍKUR TÓMASSON
Stærstu vonbrigðin í grálúðunni
Allt er breytingum undirorpið, það á ekki síður við um Þorbjöm-Fiskanes og sjávarútveginn
en önnur fyrirtæki í landinu.
Efitir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Arið 2003 urðum við fyrir verulegum verðlækkunum, gengi
íslensku krónunnar styrktist mikið þannig að við töpuðum
talsverðum tekjum en bæði tekjur okkar og skuldir eru í
erlendum myntum. Það hafði hins vegar þau áhrif að skuldir
lækkuðu. Veiðamar gengu ágætlega en það eru mikil vonbrigði
núna þegar komið er fram á árið 2004 að það skuli vera lagt
ffl að minnka veiðar á þorski. Við gerðum ráð fyrir því í öllum
okkar áætlunum og spár hafa sagt fyrir um aukningu upp á 5-10
prósent í þorskveiðum. í stað aukningar varð minnkun og þar
að auki vorum við sviptir verulegri aflahlutdeild í þorski og fleiri
tegundum vegna tilflutnings til krókaaflamarksbáta þannig að
það þurftí átak til að bregðast við þvi og við höfum nú ákveðið
að leggja tveimur bátum. Eg er sannfærður um að eignaupptaka
sem þessi færi ekki hljóðalaust fram í öðrum atvinnugreinum"
segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjöms-Fiska-
ness í Grindavík.
hveijum morgni gæðafiski í landvinnslu fyrirtækisins og er fisk-
urinn unninn fyrir kröfuhörðustu markaði Evrópu og Ameríku.
Við emm með þrjá Jrystitogara og veiðamar hafa gengið vel
en við höfum ekki fengið hátt verð fyrir afurðimar. Má segja
að síðustu tvö ár séu með slakari ámm varðandi verð og gengi
gjaldmiðla. Það gildir almennt í greininni,“ segir hann.
Eignarhaldið er Skýrt í dag Þorbjöm-Fiskanes hefur verið
skráð á hlutabréfamarkaði frá árinu 1997. í kjölfar sölunnar á
Brimi urðu miklar breytingar á eignarhaldi í sjávarútvegi. „Mörg
hlutabréf í fyrirtækinu vom til sölu og við bmgðumst við með því
að kaupa þau upp. Þetta gekk eftir og kaupin áttu sér stað í feb-
rúar og fram á vorið þannig að í dag er fyrirtækið í minni eigu,
systkina minna og föður að 67 prósentum og svo em aðrir aðilar
með þau 33% sem eftír standa, td. TM. Félagið er ekki lengur á
hlutabréfamarkaði."
Fækka Skipum á veiðum „Við höfum verið að hagræða í
rekstrinum og fækka skipum á veiðum í fyrirtækinu hjá okkur
undanfarin ár og það gildir líka um árin 2003 og 2004. Núna
erum við komnir niður í átta skip á veiðum með veiðiheimildir
af um 40 skipum. Þetta er hægt vegna þess að við emm með
fyrirkomulag stjómunar fiskveiða þar sem kvótar em fram-
seljanlegir. Árið í ár hefur verið ágætt hjá okkur. Greinin í heild
hefur verið að fara í gegnum verðlækkanir, verðið á erlendum
mörkuðum hefur verið lægra en mörg undanfarin ár og við
höfum fengið minna fyrir gjaldeyrinn sem við höfum verið að
afla vegna sterkrar stöðu íslensku krónunnar. Markaðir fyrir
afurðimar hafa hins vegar verið sterkir þannig að aHt hefur selst
jafnóðum. Þá hefur hlutfall olíukostnaðar í rekstrinum farið mjög
hækkandi. Stærstu vonbrigðin í ár em veiðar á grálúðu sem hafa
gengið mjög illa. Grálúða er verðmætur fiskur sem hefur gefið
góða afkomu en á þessu ári er grálúðustofninn í lakara ástandi
og annaðhvort er búið að ofveiða hann eða dreif-
ing hans í sjónum er breytt. Grálúða er þannig
fiskur að við þurfum að nýta hana í samstarfi við
Færeyinga og Grænlendinga en við höfum ekki
náð samkomulagi um nýtinguna á þessum fiski.
Það er stórt vandamál."
I rekstrinum á Þorbimi-Fiskanesi hefur
áhersla verið lögð á samspil veiða og vinnslu
nteð því að byggja öflugan linuskipaflota tíl að
geta boðið upp á sem mest gæði í framleiðsl-
uvöm fyrirtækisins. Akveðnum markmiðum
hefur verið náð í því. „Nú landar finuskip á
- Hverju breytir þefla fyrir fyrirtækið? „Það breytir því að eign-
arhaldið er mjög skýrt í dag. Það var í uppnámi og óvissa um
afdrif fyrirtækisins en nú er skýrt hveijir eiga það og eigendumir
em með skýr markmið um það hvemig á að reka það. Það er
aðalbreytingin."
í öðru en þorski Þegar horft er til framtíðar segir Eiríkur
að veiðar og vinnsla séu í ákveðnum farvegi. Afram verði
hagrætt í rekstri í einstökum fyrirtækjum og kvótinn aukinn
á einstökum skipum. Markaðir séu í sæmilegu standi og jafn-
vel sé hægt að gæla við þá tilhugsun að verðhækkanir fáist
á næstu misserum. Hann hefur þó ekki trú á því að krónan
veikist svo neinu nemi á næstunni, áfram fáist lágt verð fyrir
gjaldeyrinn. Samþjöppun og hagræðing í sjávarútvegi telur
hann að haldi áfram þegar fram í sækir. „Það þarf stærri og
öflugri fyrirtæki í sjávarútvegi til að geta mætt sífellt færri og
stærri kaupendum á afurðum okkar,“
segir hann.
„Við munum reka fyrirtækið áfram í
sama formi og núna. Það er ekki óum-
breytanlegt frekar en önnur fyrirtæki
en það em engin áform um annað eins
og er. Við emm að gera út línuskip og
vinna fiskinn í landvinnslu í Grindavík
og Vogum. Við erum fyrst og fremst í
saltfiski og ferskum flökum. Svo gemm
við út þrjá frystitogara á aðrar afurðir,
að mestu í öðru en þorski." 30
STÆRSTA
Velta: 3,8 milljarðar
Hagn. f. skatta: 363 milljónir
Eigið fé: 3 milljarðar
121