Frjáls verslun - 01.08.2004, Blaðsíða 170
„IFS er fyrirtæki sem sérhæfir sig í fjármálaráðgjöf við fyrirtæki,
sveitarfélög og að einhverju leyti lífeyrissjóði. Markhópurinn
er semsé fagaðilar í rekstri og fjárfestingum,11 segir Ólafur
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri IFS Ráðgjafar.
FV-mynd: Geir Ólafsson
Ólafur Ásgeirsson hjá IFS Ráðgjöf
Texti: ísak Ólafsson
að var í byijun árs 2004,
þegar ég kom heim frá
verkefni í Sviss, sem ég
ákvað að lát gamlan draum
rætast og stofna mitt eigið
fyrirtæki, IFS Ráðgjöf. Eg var
svo heppinn að fá til liðs við
mig góða kollega. Einn þeirra
er vel þekktur í heimi ijármál-
anna, Jóhann Viðar Ivarsson
sem var lektor við Háskólann
í Reykjavík og þar áður starf-
aði hann við fyrirtækjaráð-
170
gjöf Kaupþings," segir Ólafur
Asgeirsson, framkvæmda-
stjóri IFS Ráðgjafar.
„IFS er fyrirtæki sem sér-
hæfir sig í Ijármálaráðgjöf
við fyrirtæki, sveitarfélög
og að einhverju leyti lífeyris-
sjóði. Markhópurinn er semsé
fagaðilar í rekstri og flárfest-
ingum. Það er sýn okkar sem
að IFS stöndum að oft megi
bæta ýmislegt í fjármálum og
rekstri lögaðila hér á landi,
til að mynda með upptöku
skipulegri vinnubragða og
skynsamlegri notkun nýjustu
tóla við fjárstýringu. Við
horfum á fyrirtækjaflármál í
breiðum skilningi og leggjum
því einnig áherslu á ráðgjöf
við umbreytingu fyrirtækja,
svo sem hagræðingu, kaup
og sölu, samruna o.þ.h.
IFS Ráðgjöf hefur byijað
mjög vel satt að segja og
meðal annars orðið minna úr
sumarleyfum en til stóð vegna
anna. En það má heldur ekki
gleyma því að þótt fyrirtækið
sé ungt að forminu til býr að
baki því mikil reynsla, þekk-
ing og tengsl sem geta opnað
margar dyr. Við leggjum til
að mynda sérstaka áherslu á
að nýta viðamikil tengsl okkar
við innlenda og erlenda ráð-
gjafa og íjármálafyrirtæki til
að geta veitt viðskiptavinum
okkar alþjóðlega nálgun í flár-
málum sínum.
Það er nokkurs konar
hugsjón hjá okkur í fyrir-
tækinu að búa til á íslandi
lifandi vettvang fyrir faglega
umræðu og upplýsingagjöf í
rekstraríjármálum, en hana
hefur að meira eða minna
leyti vantað. Við höfum því
hafið útgáfu á fagriti sem við
köllum Fjárstýringu. Fyrsta
tölublaði var dreift til mark-
hóps okkar fyrir nokkru og
annað tölublað er að koma út
þessa stundina.Viðtökurnar
hafa verið skemmtilega góðar
og við erum í ljósi þeirra full
bjartsýni um tilverugrundvöll
svona útgáfu. Mikill meirihluti
þeirra stjómenda, sem við
höfum heimsótt, hefur greini-
lega lesið fyrsta tölublaðið og
vill sjá meira af þessu efni.“
Ólafur Asgeirsson á ættir
sínar að rekja norður í Þing-
eyjarsýslur en hefur búið
mestan hluta ævinnar hér
fyrir sunnan. „Eftir að hafa
lokið Menntaskólanum við
Hamrahlið fór ég í viðskipta-
fræði í HÍ og lauk henni 1986.
Að námi loknu hóf ég störf
hjá Landsbankanum þar sem
Tryggvi Pálsson var minn
fóstri í flármálafræðum. Eg
var svo heppinn að fá að vinna
með honum í ein 15 ár í fjár-
málageiranum. Eg var um
tíma hjá Verslunarbankanum
og þaðan fór ég ytir í Islands-
banka.
Árið 1990fór ég í MBA-nám
íBredandiogkomþaðan 1991.
Sinnti tjárstýringarmálum í
íslandsbanka og 1996 varð ég
forstöðumaður viðskiptastofu
og fjárstýringar hjá Islands-
banka. Árið 2000 sameinuð-
ust FBA og íslandsbanki og
þá ákvað ég að þiggja boð um
að færa mig yfir til Kaupþings.
Þar varð ég framkvæmda-
stjóri viðskiptaþróunar og mín
helstu verkefni hjá Kaupþingi
voru í tengslum við útrás fyrir-
tækisins til útlanda. Það var
virkilega skemmtilegur tími. I
byijun ársins 2003 fluttíst ég til
Sviss og var þar framkvæmda-
stjóri Kaupþings en kom heirn
aftur í ársbyijun 2004.“
Ólafur er kvæntur Hildi
Jónu Gunnarsdóttur. „Við
Hildur gengum í hjónaband
efdr að ég hafði haldið henni
í festum til fjölda ára. Við
eignuðumst þijú böm fyrir
giftinguna og síðan hefur eitt
bæst við. Fjölskyldan er stóra
áhugamálið hjá mér en ég er
svo heppinn að vinnan hefur
boðið mér upp á ýmis tækifæri,
mikið af ferðalögum, mannleg
samskipti og nýjungar af öllu
tagi. Þar fyrir utan má minnast
á gildi þess að vera í góðum
félagsskap. Við fömm nokkrir
félagar jafnan í Laxárdalinn
til veiða og ég hef mikinn
áhuga á golfi þó að ég kunni
nú lítið í þeirri íþrótt, enn sem
komið er.“3!]