Frjáls verslun - 01.04.2004, Síða 62
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNAR
á rústum Transworld, sem varð til í einkavæðingarsóttinni
rússnesku en endaði gjaldþrota í kjölfar gífurlegra eignaátaka
og málaferla. Uppgripamaðurinn Roman Abramovich og
annar ungur uppsveiflumaður, Oleg Deripaska, keyptu Rusal
í kaldakolum og hafa snúið dæminu við. Að sögn The Russia
Journal leikur sá orðrómur á að þeir haii hraðað gjaldþrotinu
og þar með komist yfir fyrirtækið á hagstæðari kjörum en
ella, en því hafna talsmenn Rusal eindregið.
Alcoa, með ársframleiðslu upp á 3,9 milljónir áltonna á ári,
hefur hingað til ekki þurft að óttast næststærsta álfyrirtækið
með 2,5 milljónir tonna. En áætlun nýju eigendanna er að árs-
framleiðslan verði komin í 3,75 milljónir tonna árið 2008. Raf-
orkuverðið, sem Rusal á kost á í Síberíu, er undir 1 amerísku
senti á kílóvattstundina. Að sögn Mineweb.net, sjálfstæðrar
vefsíðu um náttúruauðlindir, greiðir almenningur 2,5 sinnum
hærra orkuverð. Eins og er stendur Rusal í viðræðum við
héraðsstjórnir á þessum svæðum og er líka að reyna að
kaupa raforkuverin þarna, en virðist ekki lengur hafa meðbyr
og það er óvíst hvernig málin þróast. Flutningar eru líka stór-
mál. Verið er að undirþúa einkavæðingu járnbrautanna en
framvindan er óljós. Það eru því margir óvissuþættir í reikn-
ingsdæminu Rusal og óljóst hvernig fer nú þegar Kreml-
verjar eru að missa traustið á Rússlandseigendunum.
Landstjóri í Síberíu Almannatengslafulltrúar Abramovich
gera mikið úr því hvað hann hefur gert margt gott fyrir
Chukotka, Síberíuhéraðið þar sem hann var kosinn landstjóri
2000. Hann hefur lagt eigið fé í uppbyggingu skóla og innviða
og boðið börnum þaðan í heimsókn til London. Góð-
mennskan og óeigingirni hans er þó umdeild. Samkvæmt
The Russia Journal hefur Abramovich ekki síður haft áhuga
á ítökum í náttúruauðlindum svæðisins og hugsanlega haft
áhuga á að byggja upp stjórnmálaferil, en hann er einnig
þingmaður í Dúmunni rússnesku. Um þessar mundir er
stjórnsýsla hans í Chukotka til athugunar í Moskvu. Hann
hefur lýst því yfir að hann hyggist ekki bjóða sig fram aftur en
hefur einnig viðrað að hann vilji hjálpa íbúunum til að flytja
burtu því það sé engin ástæða til að búa þarna lengur nú
þegar svæðið gegnir ekki sama hernaðarlega mikilvægi og á
Sovéttímanum. Þetta er því kannski enn eitt merkið um
minnkandi áhuga hans á heimalandinu og tækifærum þar.
25 Rússar á auðmannalista Forbes Undanfarið hefur gengi
rússneskra hlutabréfa hækkað gífurlega, sem hefur þanið
eignir eigendanna. A auðmannalista Forbes í febrúar voru 25
Rússar. A nýjum Forbes-lista yfir rússneska auðmenn eru 36
milljarðamæringar, mælt í Bandaríkjadölum, sem nú kæmust
á heimslistann. Russia Journal reiknast svo til að rússneskum
milljarðamæringum hafi flölgað um 40 prósent á tveimur og
hálfum mánuði um leið og samanlögð auðæfi þeirrajukustúr
tæpum 80 milljörðum dala í 110 milljarða - sem hlýtur að
teljast þokkaleg ávöxtun. Meðal nýrra milljarðamæringa er
David Davidovich framkvæmdastjóri Millhouse Capital,
Andrey Gorodilof yfirmaður Sibneft. Það er því greinilega
gott að starfa hjá Abramovich. 33
Roman Abramovich er ríkasti maður Bretlands. Eignir
hans eru metnar á 975 milljarða króna. Hann skaut her-
toganum af Westminster aftur fyrir sig á nýjum lista
Sunday Times yfir auðmenn Bretlands.
Abramovich
og ísland
Myndin af Olafi Ragnari Grímssyni forseta, tekin 23.
ágúst í fyrra, að fagna velgengni Chelsea við hlið liðs-
eigandans og landstjóra Chukotka, tengist íslenskum
umsvifum í Chukotka, að sögn Alexanders Borodins ráð-
gjafa landstjórans Abramovich.
Borodin situr á skrifstofu Sibneft í Moskvu og sagði í
viðtali við Fijálsa verslun að sjálfur hefði hann mikinn
áhuga á tengslunum við ísland sem hann rækir meðal
annars í gegnum vinafélag landanna.
Olafur Ragnar hefur eins og kunnugt er heimsótt
Chukotka. Borodin sagði að bæði Orkustofiiun og verk-
fræðistofan Hnit væru ráðgjafar um nýtingu jarðhita í
héraðinu. Einnig væri áhugi á að nýta þekkingu íslendinga
á fiskveiðum. Vandi Rússa væri hins vegar að fiskveiði-
kvótum væri aðeins úthlutað til sex mánaða í senn og því
erfitt að skipuleggja veiðar.
Um nýlega eftirgrennslan á stjórnsýslu Abramovichs í
Chukotka sagði Borodin að sú athugun væri aðeins hluti af
reglulegu eftirliti með stjórnsýslu héraðanna rússnesku en
stafaði ekki af neinu sérstöku tilefni. Borodin sagði að
menn í viðskiptalífinu hefðu að sjálfsögðu miklar áhyggjur
af afskiptum stjórnvalda af viðskiptum og þá á örlögum
manna eins og Berezovkýs og Khodorkovskýs.
Um áætlanir Abramovichs í Chukotka sagði Borodin að
næstu héraðskosningar yrðu í árslok 2005. Abramovich
mjmdi sitja út kjörtímabilið en hefði ekki í huga að bjóða
sig aftur fram, þótt hann hefði enn ekki staðfest það opin-
berlega. „En það er enn mikið eftir af kjörtímabilinu,“ sagði
Borodin. „Eitt og hálft ár er langur tími í Rússlandi og
miklu hægt að koma í verk á þeim tíma.“ B3
62