Frjáls verslun - 01.04.2004, Blaðsíða 70
Stjórnmálamenn hafa lagt ýmsum málefnum lið, m.a. herferð gegn HlV-smiti þar sem landsmenn voru hvattir til að nota
smokka.
Þurfa að vanda sig
Stjórnmálamenn þurfa að vanda valið þegar þeir ákveða að taka þátt í kynningum eða
auglýsingum fyrir hönd fyrirtækja.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
......
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, er ein af þeim stjórn-
málamönnum sem hafa lagt sitt lóð á vogarskálarnar þegar ný framleiðsla
hefur verið kynnt til sögunnar. Hér sést hún prófa nýtt sjampó.
Stjórnmálamenn þurfa að vera vandvirkir þegar þeir sam-
þykkja að taka þátt í kynningu fyrir hönd fyrirtækis eða
auglýsingum þannig að það sé skýrt að þeir taka ekki þátt
í beinni sölumennsku. Það var allt í lagi þegar Vigdís fór um
allan heim og kynnti íslenska vöru. Þetta gerir Danadrottning
lika, kynnir svínakjöt um allar jarðir. En það væri hræðilegt ef
Danadrottning kæmi fram í tóbaksauglýsingum. Það þarf því
að vanda þetta ofboðslega vel, stjórnmálamenn mega ekki láta
plata sig út í hvað sem er. Það má ekki misnota þetta,“ segir J ón
Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri KOM.
Forsetinn og ráðherrar skrifa undir samn-
inga, klippa á borða og opna með viðhöfn.
Stundum prófa þeir vöru eða þjónustu. Þegar
stjórnmálamenn taka þátt í kynningu þá vilja
þeir venjulega leggja einhverju málefni lið,
gjarnan innlendri framleiðslu, og í 99 prósent
tilfella halda þeir að þeir séu að gera gagn.
Nokkur nýleg dæmi eru um slíkt. Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
studdi í vetur nýja framleiðslu á Grenivík, þegar
hún fór í útisturtu og prófaði nýtt sjampó sem
þar er framleitt og Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra tók þátt í tískusýningu á notuðum
fötum á vegum Rauða krossins í Smáralind í lok
apríl. Eldra dæmi er þegar Davíð Oddsson for-
sætisráðherra bragðaði fyrstur manna á ham-
borgara hjá McDonald’s þegar fyrsti ham-
borgarastaður fyrirtækisins var opnaður 1993.
Sama gildir um auglýsingar. Stjórnmálamenn hafa sést í
auglýsingum, t.d. Lambakjöt á diskinn minn og Mjólkin er
best með... I þessum herferðum tóku ýmsir menn þátt sem
eru áberandi í þjóðfélaginu í dag, t.d. Valgerður Sverrisdóttir
og svo Olafur Ragnar Grímsson, forseti Islands. Eldra dæmi
er smokkaauglýsing Landlæknisembættisins þar sem þekktir
einstaklingar úr þjóðlífinu voru fengnir í herferð gegn HIV-
smiti. Meðal þeirra var Steingrímur Hermannsson, þáverandi
forsætisráðherra. QB
70