Frjáls verslun - 01.04.2004, Qupperneq 72
Eg berst á fáki fráum
Vélhjól af ýmsu tagi hafa löngum heillað fólk og þá karla
fremur en konur af einhverjum ástæðum. Einn þeirra
sem ekur flest sem hann fer á mótorhjóli er Björn
Tryggvason. Hann vinnur í tölvudeild KB banka, er formaður
starfsmannafélagsins, í stjórn SIB og formaður Málbjargar,
sem er félag um stam.
„Það lylgir því mikil og góð frelsistilfinning að ferðast um
á hjóli,“ segir Björn. „Eg átti einu sinni Hondu 500 árgerð
1976. Það átti ég með bróður mínum um tíma en keypti það
af honum. Svo átti ég reiðhjól í mörg ár en keypti mér
Yamaha FZS 600, Fazer vélhjólhjól í september 2003.“
Björn segir bæði ódýrara og skemmtilegra að
ferðast um á hjóli en bíl en auðvitað
fylgi því bæði gallar og kostir.
„Maður þarf að eiga almennilegan galla til þess að geta
verið á hjóli og það er nokkur kostnaður. Við eigum bæði
galla, ég og konan, enda er hún stundum farþegi hjá mér.
Ahugi strákanna okkar hefur aukist á að fá sér hjól líka en
þeir verða að láta bílinn nægja þar til þeir eru komnir með
mótorhjólapróf."
Það er ekki laust við að vinnufélagar Björns líti hann
öfundaraugum af og tíl, þegar hann kemur skeiðandi á sínum
nútímafák í vinnuna en Björn segir þá suma sterklega vera að
hugleiða að fá sér einn slíkan.
„Þetta vekur alltaf ákveðna athygli og skapar sérstöðu sem
getur komið sér vel. Eg þurfti t.d. eitt sinn, fljótlega eftir að ég
fékk hjólið, að fara tíl Grindavíkur til að halda þar íyrirlestur
um stam en þar voru tveir krakkar sem
stömuðu, einn í hvorum bekk. Eg var ekki
orðinn mjög vanur akstrinum aftur eftir langt
hlé og það var dálítið hvasst, svona eins og
gerist á íslandi. Því þurftí ég að halla
mér einar 30 gráður upp í vindinn,
eins og ég væri í krappri beygu og
áttí fullt í fangi með að halda í
við umferðina, sem er yfir-
leitt ekki vanda-
mál. Að minnsta
kosti náði gamli
gráni á mótorhjóli vel til
krakkanna í Grunnskóla Grindavíkur!" S!j
Björn Tryggvason, KB banka, með fákinn góða.
Að breyta vatni í vín
Góðum mat iýlgir gjarna vín, ekki síst á sumrin þegar
gaman er að slá upp garðveislu, slaka á með vinum og ætt-
ingjum og njóta langra sumarkvölda.
Oft er maturinn léttur og í stað t.d. kartaflna eru höfð hrís-
gijón með matnum, enda þægileg í meðförum og geymast
Ein appelsína 49 lítrar
1 bolli af kaffi 149 lítrar
Einn stór bómullarbolur 30.275 lítrar
Ein flaska af rauðvíni 721 lítri
Einn pakki af sígarettum 75 lítar
Eitt kíló af hveiti 77 lítrar
Ein skál af hrísgrjónum 525 lítrar
Ein fartölva 10.584 lítrar
72
lengi þurr í skápnum auk þess sem hægt er að nota þau með
næstum hveiju sem er.
Við hugsum þó sjaldnast um upprunann og hvað þarf til þess
að búa tíl hrísgrjón eða vatn.
Undirstaðan í bæði ræktun
hrísgijóna og ræktun vin-
beija er auðvitað vatn og
vatn er að verða auðlind
sem við þurfum að
gæta æ betur.
Auðvitað þarf vatn í
fleira en vín en hér til
hliðar má sjá hvað þarf
marga lítra af vatni tíl að
framleiða mismunandi hluti. B!1