Frjáls verslun - 01.04.2004, Page 75
Páll Ásgeir Ásgeirsson, höfundur Hálendishandbókarinnar, á fáförnum slóðum við fossa í Syðri-Ófæru í Álftavatnskróki
Líður best úti
“L'ScMn\ÁH ANOBÓWN
Pál Ásgeir Ásgeirsson, blaðamann og höfund Hálendishandbókar-
innar, þarf vart að kynna. Hann eyðir fleiri tímum úti en inni ef hann
fær því ráðið og hefur gengið og ekið um mest allt landið bæði sér til
ánægju og í tengslum við Hálendishandbókina.
„Það er hægt að njóta náttúrunnar á ýmsa vegu en mér finnst best að
gera það gangandi," segir Páll Ásgeir. „Það er hins vegar í góðu lagi að
nota öll þau hjálpartæki sem hægt er, hvort sem það er bíll, hestur eða
skór.“
Páll segir erfitt að velja ákveðinn stað sem fallegasta eða áhuga-
verðasta staðinn þar sem frekar sé um að ræða ákveðna upp-
lifun eða augnablik sem silji eftir en staðirnir sjálfir.
„Ein sterkasta upplifun sem ég man eftír í
svipinn er ferð sem ég fór síðasta sumar um
Hálsalón, svæðið sem kemur tíl með að fara
undir vatn þegar búið er að virkja fyrir
austan. Við fórum langan hring um fyrir-
hugað lónssvæði og 80% af leiðinni vorum
við að ganga á landsvæði sem við vorum að
sjá í síðasta sinn. Það gaf þessum leiðangri
yfirbragð depurðar og gleði í senn.“
Páll heldur uppteknum hættí og ætlar sér að
fara urn landið í sumar. „Eg á von á þvi að fara með
harðsnúnu liði göngufélaga minna leið sem kölluð hefur
verið Bárðargata. Þar komum við tíl með að krækja yfir 34
jökulsporða, fara yfir sand og vaða ár þannig að allt sem gefur
góðri gönguferð gildi verður innifalið í þessari.“ ffl
75