Frjáls verslun - 01.04.2004, Síða 78
Greiðslulyklar, hort og tímasparnaður Fieirí
verktakafyrirtæki hafa séð kosti þess að fá
Selecta þjónustu á sína framkvæmdastaði til
hnjúkum eru búsettir í vinnubúðum Impregilo
og sinna áfyllingu og umhirðu vélanna daglega.
,A staðnum er líka lager og viðhaldsaðstaða
fyrir tækin," segir Hjörtur. „Þjónustan mælist
mjög vel fyrir hjá starfsmönnum þar sem ávallt
er gott framboð af hressingu innan seilingar.
Aðstæður þarna eru um margt sérstakar og
vegalengdir miklar. Þjónustumenn Selecta aka
rúmlega 200 km daglega á milli vinnubúðanna
alla daga vikunnar."
Meginþjónusta Selecta er rekstur og uppsetning á kaffivélum, vatnskælum,
sjálfsölum og djúsvélum.
Selecta:
Gæðakaffi á Kárahnjúkum
Eitt stærsta þjónustufyrirtæki heims er
Compass-Group PLC og innan þess er
m.a. Selecta, sem hefur starfað hér á
landi í rúmlega 10 ár. Compass Group PLC er
í fararbroddi í þjónustu við fyrirtæki, skóla og
stofnanir og þar eru nú um 390.000 starfs-
menn.
Fyrstu árin var starfsemi Selecta mest á stór-Reykjavíkur-
svæðinu en upp á síðkastið hefur hún færst út um landið og er
nú á Suðurnesjum, Selfossi og á Akranesi," segir Hjörtur Örn
Hjartarson, framkvæmdastjóri Selecta á íslandi. „Um síðustu
áramót hóf Selecta starfsemi á Akureyri og þar hefur okkur
verið mjög vel tekið.“
Um 20 starfsmenn eru hjá Selecta á
Islandi en fyrirtækið hefur ekki látið staðar
numið og opnaði nýlega starfsstöð við
Kárahnjúka.
„Okkar meginþjónusta er rekstur og
uppsetning á kaffivélum, vatnskælum,
sjálfsölum og djúsvélum en einnig sala á
hráefni og rekstrarvörum til fyrirtækja og
stofnana. Við gerðum samning við
Impregilo SpA um rekstur á sjálfsölum og
kaffistofum á vinnusvæði þeirra og í mars
sl. voru sett upp 26 mismunandi tæki sem
afgreiða heita drykki eins og kaffi,
cappuccino, heitt súkkulaði og fleira.
Einnig voru settir upp sjálfsalar fyrir kalda
drykld, sælgæti, kex og snarl.“
Það eru nokkuð margar kaffistofur á
svæðinu en starfsmenn Selecta á Kára-
78
þess að starfsmenn þurfi ekki að fara langt
eftir skyndibita eða svaladrykk í önnum
dagsins. Menn sjá tímasparnað og hag-
kvæmni við
þessa þjónustu og kunna vel að meta hana.
A stórum vinnustöðum eins og við Kára-
hnjúka hefur Selecta sett upp sérstakt
greiðslukerfi fyrir sjálfsalana. Til þess að einfalda viðskiptin
geta starfsmennirnir fengið sérstaka lykla eða kort sem hægt
er að fylla með ákveðinni upphæð að eigin ósk.
„Upphæðin getur verið t.d. 1.000,2.000 eða 5.000 kr.,“ segir
Hjörtur. „Þegar verslað er úr sjálfsala er lyklinum einfaldlega
stungið í hann og kemur þá upp á skjáinn hver inneignin er.
Upphæðin sem keypt er fyrir dregst síðan
af upphæðinni á lyklinum. Þennan lykil er
hægt að hlaða aftur í sérstökum hleðslu-
tækjum eða í sjálfsölunum sjálfum. Þetta
þykir mikið hagræði, þar sem menn eru
ekki með alltaf með klink í vasanum á
vinnustað sem þessum.“
Þessi greiðslukerfi þykja einnig hentug
í stærri fyrirtækjum þar sem ýmist eru not-
aðir lyklar eða kort sem eru svipuð kredit-
kortum. Kortin gagnast reyndar einnig
líka sem starfsmannakort til viðveruskrán-
ingar eða sem aðgangskort. í haust er svo
væntalegt áfyllingartæki fyrir lykla og kort
sem tekur við debet- og kreditkortum.
„Selecta er enn að stækka og stöðugt er
verið að þróa nýjar þjónustuleiðir fyrir fyrir-
tæki,“ segir Hjörtur að lokum. S3
Gott kaffi er vel þegið
hvar sem er í heiminum.
Selecta kaffi fæst víða og
nú hefur verið opnuð
starfsstöð á Kárahnjúkum.
Selecta hefur sett upp sérstakt
greiðslukerfi fyrir sjálfsala; kort
sem hægt er að fylla á með
ákveðinni upphæð að ósk hvers og
eins.