Frjáls verslun - 01.04.2004, Page 86
Draumurinn um eigið sumarhús getur orðið að veruleika með aðstoð Sparisjóðsins.
Sparisjóðir:
Njóttu lífsins - í sumarhúsi
Að eignast sumarhús er draumur
margra. Að hlusta á söng fuglanna á
vorin, njóta langra sumarnátta, horfa á
stjörnubjartan himin þegar dimmafer eða
njóta íslenskrar náttúru með öðrum hætti.
Að komast ijarri amstri hversdagsins og
vera í góðum félagsskap ijölskyldu og vina.
Lanm eru aíar hagkvæm, þau eru veitt til allt að 15 ara.
Lánið er tryggt með veði í sumarhúsinu sjálfu og eru
vextirnir breytilegir eftir veðsetningahlutfalli og áhættumati.
Veðsetning má ekki fara yfir 60% af markaðsvirði sumarhúss-
ins og skal lánið vera á fyrsta veðrétti.
Sumarhúsalán eru fyrir alla sem eru í sumarhúsahugleið-
ingum. Bæði fyrirtæki og einstaklingar geta sótt um sumar-
húsalán Sparisjóðsins og er lánið jafnt fyrir núverandi og nýja
viðskiptavini.
Fyrir þá sem huga að framkvæmdum heima fyrir býður
Sparisjóðurinn upp á sérstakt framkvæmdalán. Hvort sem
ætlunin er að fá sér heitan pott, pall eða taka garðinn í gegn.
Framkvæmdalánin eru með veði í fasteign og bera hagstæða
vexti líkt og sumarhúsalánið.
Hægt er að sækja um sumarhúsa- og framkvæmdalán í
næsta sparisjóði. Með umsókninni þurfa að fylgja afrit af
kauptilboði eða verðmat frá löggiltum fasteignasala, lóðaleigu-
samningur, veðbókarvottorð, fasteigna- og brunabótamat og
staðfesting á því að sumarhúsið sé tryggt gegn tjónum.S!]
Lán til kaupa á sumarhúsi eða
viðhalds eru hagstæð og góð
lausn. Sparisjóðirnir bjóða
lönglán á góðum kjörum.
Með aðstoð Sparisjóðsins getur
draumurinn orðið að veruleika. Spari-
sjóðurinn býður nú sumarhúsalán á
góðum kjörum. Lánin eru hagkvæmur
kostur fyrir fólk í sumarhúsahugleið-
ingum hvort sem ætlunin er að kaupa
sumarbústað eða breyta og bæta þann gamla.
86