Frjáls verslun - 01.04.2004, Side 92
kvöldum. Konan mætti koma oftar með mér en hún þykist
reyndar enn vera of ung fyrir þetta sport en lofar bót og
betrun. Hún hefur hins vegar mjög gaman af laxveiði og
förum við saman í nokkrar slíkar ferðir á sumri hveiju. Yið
höfum einnig gaman af því að fara á ijöll og förum alltaf í eina
góða jeppaferð með nokkrum æskuvinum mínum úr Kópa-
voginum ásamt börnum. Þessi ferð er orðin óijúfanlegur hluti
af sumrinu sem enginn vill missa af. Lengi vel fórum við
feðgar alltaf á flesta leiki Breiðabliks í fótboltanum en ein-
hvern veginn hefur áhuginn dofnað eftir þvi sem sigrunum
hefur fækkað! A síðasta ári keyptum við okkur síðan land-
skika skammt frá Flúðum í Hrunamannahreppi. Við erum nú
að láta teikna þar fyrir okkur hús og höfum áhuga á að setja
hluta af landinu undir skógrækt. Ég reikna því með að þar
munum við eyða töluverðum hluta af sumrinu á næstu árum,
enda ágætur golfvöllur í næsta nágrenni, margar skemmti-
legar ár á svæðinu og stutt í fallega ljallvegi,“ segir Hjörleifur
Jakobsson, forstjóri Olíufélagsins. B3
Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Olíufélagsins.
Dagskráin hjá okkur á sumrin eru nokkuð þétt skipuð
enda áhugamálin mörg. Fyrir nokkrum árum var ég
plataður í golf og féll alveg fyrir þeirri íþrótt. Ég er því
núna margvisst að vinna niður forgjöfina á sólríkum sumar-
Golf og laxveiði
Uppáhaldsborgin
Hafþór Hafsteinsson forstjóri hjá Atlanta.
Hafþór Hafsteinsson forstjóri hjá Atlanta segir að líklega
sé Buenos Aires uppáhaldsborgin sín eins og er.
„Ástæðurnar eru þær að landinu fylgir áhugaverð saga,
fólkið er mjög afslappað, elskulegt og einlægt. Það eru tiltölu-
lega há gæði á allri þjónustu og þjónustulund mikil, úrval
mjög góðra veitingastaða og síðast en ekki síst er allt mjög
ódýrt og vörur í búðum eru þær bestu sem fást bæði hvað
varðar tísku og gæði og ekki má gleyma tangóinum sem
minnir á sig um alla borgina." SLl
Veiði í Borgarfirði
r
Eg ætla að stunda golf, bæði í Hafnarfirði, austur í
Öndverðarnesi og á golfvellinum á Kiðabergi í Gríms-
nesi, en það er einn af skemmtilegri völlum landsins,
og svo ætla ég að vera í sumar-
bústaðnum mínum í landi
Asgarðs, en þar er ég með
lítið hús. Ég býst við að ég
reyni að veiða pínulítið og
ferðast um landið. Ég er að
hugsa um að fara á
Strandirnar og ætli ég veiði
svo ekki í Borgarfirðinum í
sumar,“ segir Þórður
Sverrisson, forstjóri Nýherja.
Þórður Sverrisson, forstjóri
Nýherja. „Ég býst við
að ég reyni að
veiða pínulítið
og ferðast um
landið. Ég er
að hugsa um
að fara á
Strandirnar í
sumar."
92