Frjáls verslun - 01.04.2004, Qupperneq 100
Fyrir u.þ.b. tveimur árum tókum við í notkun nýjan fram-
leiðslusal fyrir framleiðslu á út- og innveggjum af mörgum
gerðum. Viðtökur hafa verið mjög góðar og sem dæmi þá fram-
leiddum við einingar í um 80 íbúðir á síðasta ári.
Fallegt úti og inni Sumarhúsabyggingar eru stækkandi
markaður og spennandi. Þar hafa verið hefðbundnar lausnir í
gangi en Einingaverksmiðjan ákvað að kanna markað fyrir nýja
gerð sumarhúsa sem væru steypt úr einingum en um leið að
hluta til úr öðrum efnum. Við fengum arkitektastofuna Úti og
inni til að teikna nýja gerð af sumarhúsi og sést sú vinna í þessu
89 fm húsi, þar sem 35 fm eru glerhýsi. Það er mikið lagt í
hönnunina og innri hluti þess er með lausum veggjum þannig
að hver og einn hefur möguleika á að innrétta eftír því sem
honum hentar. Glerhýsið fyrir framan er hugsað sem stofa og
alrými og klæðningin er valin til samræmis við umhverfið svo
húsið passi sem best inn í landslagið. Húsið er einfalt í smiðum
og útfiti en um leið fallegt og nýtist vel.“ Það er óhætt að segja
að húsið komi á óvart. Það er óhefðbundið en einfalt og auðvelt
að fella vel inn í umhverfið. Að innan er það rúmgott og bjart.
Þakið á húsinu er tvískipt, annars vegar flatt, t.d. með torfi á
steypta hlutanum, og svo eins og svífandi hallandi flötur yfir
glerhýsinu. Þakið nær út fyrir glerveggina og myndar skyggni
Sigurbjörn Ágústsson, framkvæmdastjóri
Einingaverksmiðjunnar.
Einingaverksmiðjan:
:
K
•
, :S
Viðhaldsfrí steinsteypt sumarhús
Það er frábært að eiga sumarbústað. Geta
farið úr hversdagslífinu og slakað á í ró og
friði sveitafifsins, dundað við að græða upp
landið, setja niður kartöflur og allt annað sem
fólk hefur gaman af að gera í frístundum. En það
eru ekki alfir tilbúnir að eyða miklum tíma í við-
hald á bústaðnum og vilja fremur nota tímann til
annarra hluta. Þar sem flestir sumarbústaðir til þessa hafa verið
byggðir úr timbri, hefur verið erfitt að komast hjá talsverðri við-
haldsvinnu á hveiju ári. Fyrir ári síðan fór Einingaverksmiðjan
inn á nýjar brautir og hóf framleiðslu á glæsilegum viðhalds-
fríum stein-sumarhúsum. „Við höfum sérhæft okkur í að fram-
leiða einingar úr steypu," segir Sigurbjörn Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Einingaverksmiðjunnar. Meðal stærstu verkefna
okkar hingað til er hægt að nefna stækkun Kringlunnar,
stækkun ISAL og byggingu Smárafindar, og svo hafa gólf-
einingar frá okkur verið notaðar í allflesta nýrri skóla landsins,
við höfum fika framleitt mikið af einingum í önnur verkefni, svo
sem brýr, fjölbýli og einbýlishús ásamt alls kyns sérsmíði.
100
Nýjar lausnir í sumar-
húsabyggingum hafa litið
dagsins Ijós hjá Eininga-
verksmiðjunni. Glæsileg
og viðhaldsfrí hús.
yfir verönd. í þeim hluta þaksins er viður
sem þarfnast lítils viðhalds og að auki snýr
hann niður.
Gluggar eru úr timbri en álklæddir að utan
Einfalt er að stækka húsið, sé þess óskað, því
einfaldlega er bætt við einingum til hfiðar eða
að aftanverðu, hvort sem hentar betur. „Við sögðum frá sumar-
húsunum okkar í Hús&híbýfi í fyrra til að kanna viðbrögð
markaðarins og hefúr aldrei verið eins mikið hringt inn tíl
okkar, hvorki fyrr né síðar. Það sýndi okkur hversu mikil þörf
er orðin á því að breyta aðeins til í hönnun og smíði sumarhúsa.
Við höfum gríðarlega reynslu á þessu sviði og getum þannig
veitt bestu hugsanlega þjónustu, hvort sem um er að ræða ein-
ingarnar sjálfar, samsetningu eða annað sem að þeim snýr.“
A heimasíðu Einingaverksmiðjunnar, www.ev.is, er að finna
góðar upplýsingar um fyrirtækið og framleiðsluvörur þess. Þar
er einnig að finna allar teikningar fyrirtækisins og upplýsingar
sem viðskiptavinir hafa þörf fyrir. SO