Frjáls verslun - 01.04.2004, Page 106
STJORNUN
Kanntu að hlusta?
Það kunna ekki allir listina að hlusta á aðra og heyra hvað þeir hafa að segja. En
það að hlusta rétt á aðra getur sparað stórfé, stuðlað að sálarheill fólks og bætt
verulega andrúmsloft innan fyrirtækis.
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Mynd Geir Ólafsson
Manstu eftir því að hafa verið í návist einhvers sem þér
leið ákaflega vel með? Einhvers sem þér fannst að
skildi þig virkilega vel, stæði með þér og dæmdi þig
ekki heldur var hvetjandi og elskulegur? Þegar þú horfir til
baka og rifjar þetta upp, er hugsanlegt að þú komist að þeirri
niðurstöðu að viðkomandi hafi kannski sagt mest lítið en hafi
þess í stað hlustað á þig af athygli. Það að veita öðrum fulla
athygli fær viðkomandi til að fá það á tilfinninguna að það sé
tekið tillit til hans og hann metinn að verðleikum. Honum
líður vel, hann verður öruggari og tilbúinn til að veita þér
meiri upplýsingar.
Sumir fara í „steik“ Hugtakið „virk hlustun" hefur verið
þekkt hér á landi í um 30 ára skeið. Það var að líkindum fyrst
kynnt hérlendis í tengslum við barnauppeldi en er nú ekki
síður beitt sem stjórntæki í rekstri og sem vinnutæki sálfræð-
inga, félagsráðgjafa, presta, samningamanna, og fleiri.
„Virk hlustun miðar að því að bæta samskipti milli fólks
og dýpka þau,“ segir Haukur Ingi Jónasson, sem kennir m.a.
virka hlustun við Endurmenntunarstofnun HÍ. „Hún greiðir
fýrir streymi upplýsinga manna á milli og gerir fólki auð-
veldara að ræða saman. Þá er virk hlustun nauðsynleg þeim
sem fást við miðlun flókinna upplýsinga í orði og þeim sem
Haukur Ingi Jónasson,
sálgreinir: „Ég álít að það sé
eitt sterkasta tæki stjórnenda
að geta hlustað vel.