Frjáls verslun - 01.04.2004, Page 110
Vínin í sumar
Tilvalið er að drekka rósavín á sumrin. Það er ljómandi fordrykkur
og á vel við með flestum mat; kjöti jafnt sem fiski.
Eftír Sigmar B. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson
RÓSavín Tilvalið er að drekka rósavín
á sumrin. Það er ljómandi fordrykkur og
á vel við með flestum mat; kjöti jafnt sem
fiski. Domaine de Barbarossa frá Korsíku
er ljúft og bragðmikið vín, vel kryddað og
frískandi, frábær fordrykkur og passar mjög
vel með vel krydduðum grillmat. Lambrusco
Emilia Rose kr. 690,- er eiginlega áfengur
ávaxtadrykkur eða gosdrykKur. Lambrusco
sem margir kalla pítsuvín er léttfreyðandi. Þetta
vín er rétt aðeins sætt með þægilegu ávaxta- og
beijabragði. Þetta er ágætisdrykkur í staðinn fyrir
bjór og tilvalið að drekka á hlýju sumarkvöldi á
meðan beðið er eftir því að grillið hitni.
Carmenere Það er athyglisvert að þrúgur
sem áður fyrr voru talsvert notaðar í Evrópu
hafa gengið í endurnýjun lífdaga í nýja heiminum.
Dæmi um slíkar vínþrúgur eru Zinfandel sem hafa
110
Sumarið er komið með sumarbústaðaferðurn og veiði-
túrum. Yfir sumarmánuðina er bjórneyslan í hámarki.
Æ fleiri íslendingar kjósa þó nú orðið að drekka léttvín
í staðinn fyrir bjór og sterkar veigar. Það er um að gera að
drekka góð vín, það er algjör óþarfi að taka aðeins með sér
kassavín í sumarbústaðinn. Góður matur krefst vandaðra
vína. Fátt er betra á sólríkum sumardegi en að fá sér glas af
hæfilega köldu hvítvíni.
Itölsku hvítvínin eru létt og fersk og því tilvalin sumarvín,
fá vín eru heppilegri en Pinot Grigio.
Frábært sumarvín er Valle Pinot
Grigio á kr. 1.490,-. Þetta er sér-
lega ferskt vín, þurrt með þéttu
krydd- og ávaxtabragði. Tilvalið að
drekka eitt sér á sólpallinum. Banfi
le Rime Chardonnay - Pinot Grigio kr.
1.190,- er sömuleiðis ferskt með tölu-
verðum ávexti sem gerir vínið rétt milt en
þó þurrt. Frá Nýja Sjálandi kemur Cloudy
Bay Sauvignon Blanc á kr. 1.990.-. Þetta er
fallega ljósgrænt vín og ilmríkt. Vínið er
frískandi, þurrt með bragði af grænum
eplum og jafnvel aspas, skemmtilegt vín
með sterkum séreinkennum.
bókstaflega blómstrað, ef svo má að orði komast, í Kaliforníu.
Einnig mætti nefna Malbec í Argentínu. Þessar þrúgur henta
einstaklega vel náttúrufari og veðri þessara landa og
útkoman er athyglisverð og í flestum tilvikum ljómandi vín. í
flóru vína sem komið hafa í verslanir Á.T.V.R. er vín frá Chile
De Martino Carmenere. Þetta vín er pressað úr Carmenere
þrúgunni sem töluvert var notuð í Frakklandi, þá aðallega í
Bordeaux á árum áður. Þessi þrúga var einkum notuð til að
gefa víninu lit og kraft. Eftir að vínlúsin Phylloxera eyðilagði
nánast alla vínakra Evrópu 1863 má segja að hætt hafi verið
að nota þessa þrúgu hér í Evrópu. Nú hefur hún sem sagt
skotið upp kollinum i Chile.
Carmenere þrúgan hefur dafnað einstaklega vel í Chile og
úr henni gert einstaklega skemmtilegt vín - sannkallað
sumarvín. De Martino Carmenere kr. 1.260,- er kröftugt vín
með dimmum purpurarauðum lit. í nefi má greina tóbak,
De Martino Carmenere,
eitt best varðveitta
leyndarmálið í ríkinu.