Morgunn - 01.12.1964, Page 11
MORGUNN
89
er hver um sig virðist með öilu óskiljanlegur og samheng-
islaus, en falla saman í fullkomna heild, þegar þeir eru
bornir saman, eru og sterk sönnun þess, að þar sé hulin
vitsmunavera að verki, sem hefur ákveðinn tilgang, og
þá fyrst og fremst þann að sannfæra menn um, að hún
sé til. Þessi fyrirbæri eru af mörgum talin ein traust-
asta sönnunin fyrir framhaldslífi, enda verður öðrum skýr-
ingum t. d. um fjarhrif, undirvitund og þess háttar, þar
ekki komið við þannig, að unnt sé að gera þær senni-
legar.
3. Margt í hinum nýjustu rannsóknum á fjarhrifum og
hinum svonefndu ESP fyrirbærum, bendir sterklega í þá
átt, að starf vitundarinnar og heiians þurfi ekki ávallt að
fylgjast að, og að heilinn sé tæki, sem sál mannsins notar
í þessu jarðlífi, en skapi ekki sjálfur né framleiði á sitt
eindæmi hugsunina og það, sem við nefnum persónuleika
mannsins. Og þetta er því athyglisverðara, þar sem marg-
ir hafa beitt þessum rannsóknum einmitt í þeim tilgangi
að afsanna kenningar spiritista og finna aðrar skýringar
hinna sálrænu fyrirbæra.
4. Allur þorri hinna dulrænu fyrirbæra eru þannig, að
þau gera beinlínis sjálf kröfu til þess að þau stafi frá
framliðnu fólki. Á þessu atriði eiga andstæðingar spirit-
ismans erfitt með að gefa fullnægjandi eða eðlilega skýr-
ingu. Það er engin leið til þess lengur að stimpla alla
miðla sem auðvirðilega loddara, né heldur reynslu þús-
unda manna sem einbera blekking. Menn sjá látna menn
í sýn og þekkja þá greinilega. Miðlar lýsa framliðnu fólki,
sem þeir aldrei hafa augum litið á meðan það lifði hér
á jörð, né heldur hafa þeir séð af því ljósmyndir eða aðr-
ir lýst því fyrir þeim. Þeir segja rétt til um nöfn látinna
manna og skyldleikasambönd við einstaka fundargesti.
Þeir iýsa rétt iöngu liðnum atvikum úr lífi þessa fram-
iiðna fólks, stundum atvikum, sem viðstaddir ekki kann-
ast við, en síðar sannast, að í alla staði hefur verið rétt
skýrt frá af miðlinum.