Morgunn


Morgunn - 01.12.1964, Qupperneq 20

Morgunn - 01.12.1964, Qupperneq 20
98 MORGUNN var í sumardvöl hjá vini sínum um það bil mílu vegar frá verzlunarbúð föður hans. Walter var syndur vel og fór oft í sundpollinn með öðrum drengjum. Nótt eina dreymir föður hans, að Walter hefði verið að synda undir stóru tré, sem slútti fram yfir sundpoll- inn — og drukknað. Honum þótti hann bregða þegar við og fara þangað. Þá var líkið enn ófundið, en John McC— var að kafa eftir þvi. Við þetta hrökk hann upp grátandi og mjög hræddur. En kona hans reyndi að sefa hann, sagði, að ekki væri mark að draumum og oft ljótur draumur fyrir litlu efni. En ef honum fyndist það öruggara, gæti hann talað við Walter á morgun, þegar hann kæmi heim, og bannað honum að synda í tjörninni. Morguninn eftir, þegar maðurinn var önnum kafinn í búð sinni, kom Walter hlaupandi inn og sagðist vera að fara í sundpollinn. Faðir hans hafði þá gleymt draumn- um í bili og leyfði honum að fara. Skömmu seinna kom maður inn í búðina og æpti: „Komdu fljótt! Hann Walter stakk sér í pollinn og hefur ekki komið upp aftur.“ Þá rifjaðist draumurinn upp, og hann hljóp af stað eins og fætur toguðu. Líkið hafði þá ekki fundizt, en John McC— var að kafa eftir því. Drengurinn hafði sokkið undir trénu, nákvæmlega eins og í draumnum. Faðir hans var óhuggandi og ásakaði sjálfan sig harðlega: ,,Ef ég hefði tekið mark á draumnum, væri Walter sonur minn enn á lífi.“ Stundum eru varúðarráðstafanirnar ekki nægilega miklar. 1 júlímánuði 1952 var kona nokkur i New Jersey sitjandi uppi í rúmi sínu og beið eftir bónda sínum heim úr vinnunni, en hann var á næturvakt. Dimmt var í her- berginu og konan syfjuð og hálfdottandi. Þá finnst henni hún allt í einu sjá hroðalegt slys. Hún sá barnslík liggja á jörðinni og var breitt yfir það, svo hún vissi ekki, hvort það var drengur eða stúlka. En eftir stærðinni gizkaði hún á, að það væri fimm eða sex ára.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.