Morgunn


Morgunn - 01.12.1964, Page 44

Morgunn - 01.12.1964, Page 44
122 MORGUNN miðilsástandi eða dásvefni, er það, að sálfarinn getur engin afskipti eða áhrif haft á það, sem hann sér, t. d. ekki fært hluti úr stað eða þess háttar. Allar tilraunir í þessa átt eru þó miklum vandkvæðum bundnar og verulegur árangur næst ekki nema endrum og eins. Og enda þótt sumir vísindamenn telji sig stund- um hafa náð undraverðum árangri við einstakar tilraunir, eru jafnan til þeir menn, sem tortryggja þær niðurstöð- ur og telja þær byggðar á of veikum grundvelli, og ekki gætt allra þeirra ráðstafana til öryggis, sem æskilegar og nauðsynlegar mætti telja, eða slá því beinlínis fram, að brögð hafi verið höfð í tafli. Þetta hefur jafnvel átt sér stað, þótt frægir vísindamenn hafi átt í hlut. Ein af þeim allra merkilegustu tilraunum, sem gerðar hafa verið varðandi sálfarir í sambandi við dáleiðslu, var tilraun, sem vísindamaðurinn franski, Pierre Janet, gerði og var hin einkennilega Leonie sú, sem dáleidd var. Hið merkilegasta við þessa tilraun var það, að það voru al- gjörlega óvænt atvik, sem gáfu henni aðalgildið sem sönnun fyrir sálförum. Tilraun þessi var gerð í Le Havre. Og þegar Leonie var komin í mjög djúpan dásvefn var henni sagt að fara rakleitt á tilraunastofu próf. Charles Richet í París. Skyndilega hrópar hún upp úr svefninum, að hún sjái bál og segir, að það sé kviknað í einhvers staðar, án þess að geta þó nánar gert grein fyrir því. Síðar kom í ljós, að kviknað hafði í tilraunastofu próf. Richet svo að segja á sömu stundu og tilraun þessi var gerð og brann húsið til kaldra kola. Þeir, sem ekki beinlínis berja höfðinu við steininn og neita að trúa því, að rétt sé skýrt frá, neyðast til að við- urkenna, að annað hvort hafi hér verið um sálfarir að ræða eða að minnsta kosti fjarskyggni á háu stigi. Verð- ur og aö viðurkenna það, að oft getur verið mjög örð- ugt að skera úr um það, varðandi einstök fyrirbæri, hvort þar sé um fjarskyggni eða sálfarir að ræða.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.