Morgunn - 01.06.1968, Blaðsíða 23
MORGUNN
17
fullkomin sem stöðin er, ræður hún því þó ekki sjálf, við
hvern er talað, né heldur hinu, hvað talað er. Þar verður
Þetta dularfulla „ég“ einstaklingsins að koma til sögunnar.
Um það hefur mikið verið rætt undanfarið í útvarpi og
blöðum, að tekizt hefur að skipta um hjarta í nokkrum
uiönnum. 1 því sambandi gæti maður látið sér detta í hug,
að einhvern tíma kynni einnig að takast að skipta um heila
°g setja í staðinn heila úr allt öðrum manni. Hvað mundi
verða, ef þetta tækist? Mundi sá, sem heilann fær, verða
áfram hann sjálfur eins og þegar hann fær hjarta úr öðr-
um manni? Eða mundi hann eignast það ,,ég‘“, sem sá var,
sem heilinn var tekinn úr? Það er að minnsta kosti gaman
uð velta þeirri spurningu fyrir sér. Fengist svar við henni á
t>á lund, að maður lifði það af að láta setja í sig annan
mannsheila, þá mundi það koma í ljós, hvort „ég“ manns-
ins og heili hans er eitt og hið sama, eða hvort heilinn er á
sama hátt og hjartað aðeins starfstæki líkamans.
Eins og sakirnar standa nú, er það aðeins tilgáta og
meira að segja mjög hæpin og ósennileg tilgáta, að það sem
við nefnum „ég“ eða sál mannsins sé ekkert annað en starf-
semi heilafrumanna. Fyrir þessu hafa engar fullgildar sann-
anir verið færðar. Nokkrir ágætir vísindamenn trúa þessu
að vísu eða að minnsta kosti telja það vera hentuga tilgátu
í vísindastörfum sínum. Hinum mun þó sífellt fara fjölgandi
1 hópi hinna gáfuðustu sálfræðinga, heimspekinga og lækna,
sem telja hina skoðunina réttari og sterkari rökum studda,
að hið ósýnilega „ég“ mannsins sé raunverulega til, en heil-
mn sé aðeins tækið, sem það notar á meðan það dvelst í
þessum efnislíkama.
Heili þinn er líkur margstrengjaðri hörpu, og allt bendir
til að það sért þú, sem á hörpuna leikur. Það virðist hrein
fjarstæða að láta sér detta í hug, að harpan leiki á sig sjálf.
Það er heldur ekki sennilegt, að það geti verið hin utanað-
komandi áhrif og skynjanir einvörðungu, sem hreyfi strengi
hörpunnar. Ef svo væri, ættu hinar sömu skynjanir jafnan
að vekja hin sömu geðhrif. Reynslan sýnir, að svo er ekki.