Morgunn - 01.06.1968, Page 31
MORGUNN
25
húsinu og sendi þangað frænda þeirra, sem er læknir, til að
vitja um hann. Er skemmst frá því að segja, að hann komst
að því, að Ford var vegna þessara stöðugu morfíngjafa, sem
vitanlega hefði átt að minnka smátt og smátt, orðinn ofur-
seldur morfínnautninni. Sagði hann Ford umbúðalaust, að
ekki væri nema um tvennt að velja, annað hvort að draga
úr skammtinum smátt og smátt, eða snögghætta morfín-
neyzlunni. Hvor kosturinn sem valinn yrði, myndi valda
miklum þjáningum, en þær myndu taka skemmri tíma, ef
síðari kosturinn væri tekinn, en verða jafnframt óbærilegri
meðan á því stæði. Um þetta segir Ford sjálfur: „Og ég tók
mína ákvörðun. En um nóttina leið ég slíkar kvalir bæði á
sál og líkama, að ég hefði þúsund sinnum heldur kosið að
deyja, og það þó eftir fylgdu eilífar píslir í víti. Þegar ég
minnist þjáninga þessara daga, rennur mér ennþá kalt vatn
milli skinns og hörunds. Það er sagt, að menn gleymi fljót-
lega líkamlegum þjáningum, en angistin og hin andlega
þjáning gleymist aldrei. Hver taug í líkama mínum bók-
stafiega æpti og engdist í krampateygjum. Eg gat hvorki
neytt svefns né matar. Ég hágrét á daginn, en bölvaði á
nóttunni. Hvers vegna hafði ég ekki fengið að deyja með
systur minni og vinkonu hennar? Hvers vegna hafði Guð
yfirgefið mig? Nú skildi ég örvæntingu Jobs, er hann for-
mælti Guði og fæðingardegi sínum. En ég fékk ekki að deyja.
Og ég reyndi að halda dauðahaldi í trúna á réttlæti Guðs
þrátt fyrir allt.
Síðasta höggið, sem ég var lostinn var það, að ég missti
sjónina. 1 um það bil þrjár vikur var ég gjörsamlega blind-
ur. Og þegar sjónin var farin, hnignaði brátt allri von. Hafði
ég þá reynt allar þessar óbærilegu þjáningar til þess eins að
verða í eilífu myrkri það sem ég átti eftir ólifað?“
Nei, Arthur Ford átti eftir að fá aftur sjónina og sigrast
með óbugandi karlmennsku á ofnautnarástríðu morfínsins.
En það varð dýru verði keypt, því taugar hans voru algjör-
lega bilaðar eftir hina ofurmannlegu áreynslu, og leiddu
þær afleiðingar hann aftur í víti nýrra þjáninga og ann-