Morgunn - 01.12.1985, Blaðsíða 14
bandinu, að viö höfum alltaf þörf á sönnunum. Allir, sem
hafa kynnt sér þetta mál vandlega, og sérstáklega ef þeir
úr skugga um það, að oftast er sambandið allt annað en
hafa lcynnt sér það með tilraunum, liljóta að hafa gengið
úr skugga um það, að oftast er sambandið allt annað en
öruggt. Til þess að reyna, hve öruggt það er, er engin önn-
ur leið til en sannanirnar. Sú opinberun, sem kemur í sam-
bandi við sannanir, á að minnsta kosti heimtingu á því,
að hún sé vandlega íhuguð. Það er beinlinis ólíklegt, að
liún sé ekki að einhverju leyti rétt. Sannanalaus opinber-
un getur auðvitað verið rétt. En álla tryggingu vantar.(e
(Úr „Trú og sannanir")
★
Ekkert mál hefir sœtt á þeim 90 árum siðan er hreyf-
ingin hófst, jafnmiklu af óskynsamlegri gagnrýni og óskyn-
samlegri andúð eins og þetta mál. Nú er ástœða til að fagna
aUri þeirri mótspyrnu, því að málið liefir ekki aðeins stað-
izt hana, heldur eflzt dásamlega, og það er ein af trygging-
unum fyrir því, að það sé á heilbrigðum og traustum grund-
velli reist. Það hefir haft á móti sér visindamennina, kirkj-
una og almenningsálitið. Stórskot.ahríðir lœrdómsins, rétt-
trúnaðarins, hatursins og háðsins hafa dunið á þvi. Þegar
til lengdar hefir látið, hefir það áUt orðið árangurslaust.
... En öll glíma við málið. öll gagnrýni og allar tilgátur
eru gleðiefni. Eftir engu er verið að leita öðru en sann-
JeiJcanum.“
(tlr fyrirlestri fluttum í Stúdentafél. Reykjavikur).
12
MORGUNN