Morgunn - 01.12.1985, Síða 94
Margir menn hafa farið úr líkamanum, meðan þeir voru
svæfðir, t. d. fyrir uppskurð. Hjúkrunarkona ein segir
frá því, að margir sjúklingar hafi sagt sér, að þeim hafi
fundizt þeir berast gegn. um löng göng, meðan verið var
að svæfa þá fyrir læknisaðgerð, eða meðan þeir sváfu.
Meðan Ralph Shirley var ritstjóri The Occult Review,
bárust honum oft bréflegar frásögur fólks af þessu sama.
Hér voru ekki heldur neinir miðlar á ferðinni. Á tákn-
máli var fólk að segja frá því, sem það hafði sjálft reynt.
Við fernar aðstæður má segja, að menn fari úr líkam-
anum: 1) fyrir fullt og allt með eðlilegum dauða, 2) fyrir
fullt og allt með óeðlilegum, ótímabærum dauða, 3) um
stundarsakir með eðlilegum hætti, og 4) um stundarsakir
með óeðlilegum hætti. Við allar þessar aðstæður hefir
fólk — án þess einn vissi um annan — lýst sálförunum
sem ferð gegn um göng. Mér þykir það ákaflega athyglis-
vert.
En. jafnvel enn athyglisverðara er það, að þessa lík-
ingarmynd af ,.göngunum“ notar fólk einnig til þess að
lýsa því, er það fer inn í iíkamann aftur, eftir að hafa
horfið úr honum um stundarsakir. Árið 79. e. Kr. segir
Plútark frá manni, sem hafði s^gt, er hann kom til lík-
amans aftur, að það hefði verið eins og að fara í gegn
um pípu. Hr. Percy Cole. sem marga f.yrirlestra hefir
fiutt um sálfræði. var svæfður fyrir nokkrum árum vegna
læknisaðgerðar og fór úr líkamanum meðan á svæfing-
unni stóð. Hann líkir því. þegar hann kom í líkamann
aftur. við að fara gegn um ,dimm göng“. Þetta segja
venjulegir menn, sem ekki eru miðlar. um reynslu sína.
Þó er það enn athyglisverðara, að þessa líkingu af
,.göngunum“, eða aðra hliðstæða, notar fólk, sem var
ekki að koma aftur inn í eigin líkama sinn, heidur var að
fara inn i Hkama miðils. sem var í dásvefni. transi. Philip,
sonur A. Gilberts, sem var ,.dáinn“, líkti þessu við að
fara inn i trekt, eða reykháf. Eftir að dr. Hodgson var lát-
inn, var hann að reyna að lýsa hvernig það væri, að fara
92
MORGUNN