Morgunn - 01.06.1994, Page 10
MORGUNN
Skapari Sherlock Holmes var skoskur læknir, fyrrverandi
katóliki, ötull íþróttamaður og sannur herramaður af gamla
skólanum. Þó að hann sé mest tengdur við hinn svala og
úthugsaða leynilögreglumann sem hann skapaði, þá hafði
Conan Doyle þegar á námsárum sínum áhuga á spíritisma,
dulhyggju og lífsháspeki. í sögunum hans er oft að finna
dulrænan þráð; í sögum eins og „The Hound of the Basker-
villes“ t.d. er samfelld spenna milli dulrænnar og jarðbund-
innar lausnar á gátunni.
Arið 1893 gerðist Conan Doyle meðlimur í Sálarrann-
sóknarfélaginu, mjög virðulegum félagsskap, er hafði stjóm-
málamanninn Arthur Balfour fyrir formann og varaformenn
eins og ameríska sálfræðinginn William James og þróunar-
náttúrufræðinginn Alfred Russel Wallace. En ýmsar deilur
komu upp í þessum félagsskap, t.d. í sambandi við hneykslis-
mál eðlisfræðingsins William Crookes og miðilsins Florrie
Cook.
A nítjándu öldinni voru miðilsfundir vinsælir. Hópar sem
borguðu sig inn sátu í dimmum herbergjum með miðli sem
reyndi að koma á sambandi við framliðna. Heilmörg
hjálpartækji voru notuð: silfur trompet sem hinir framliðnu
tjáðu sig í gegnum, klefar sem miðlamir voru læstir inni í,
sjálflýsandi tamborínur sem svifu um loftið yfir höfðum
viðstaddra. Þegar best tókst til birtist andlit eða form í útfrymi
frá miðlinum. Þetta var sérsvið Florrie Cook.
Meðan á fundunum hennar stóð var hún læst inni í klefa,
þar sem hún fór í trans. Fljótlega birtist svo út úr klefanum
stórglæsileg ung kona í sjálflýsandi klæðum og gekk um
herbergið. Nafn hennar var Katie King.
Eftir að William Crookes sat fund varð hann svo hrifinn af
miðilshæfileikum Florrie að hann flutti hana heim til sín í
nokkra mánuði svo betra væri að rannsaka fyrirbærin. Eftir
nokkum tíma lýsti hann því yfir að um rauveruleg fyrirbæri
væri að ræða og engin svik í tafli.
8