Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Side 12

Morgunn - 01.06.1994, Side 12
MORGUNN mínum, ég tók mér ákveðna stellingu í stólnum í upphafi og hélt henni síðan út fundinn. 4. Ég reyndi að tæma hugann, ef ske kynni að einhver gæti lesið hugsanir mínar. 5. Ég lagði mig fram um að taka jafn vel eftir öllu sem sagt var, hvort sem það passaði eða ekki. Tilhneigingin á miðilsfundum er að vera ánægður með það sem passar en líta framhjá hinu sem passar ekki. Ég var ánægður með áætlunina, en gerði mér grein fyrir að það yrði mjög erfitt að fylgja henni eftir. Þó svo að það hafi verið ætlun mín að gefa miðlunum engar upplýsingar um mig eftir venjulegum leiðum, þá er staðreyndin sú, að við gefum öll hvert öðru fullt af upplýsingum um okkur með klæðnaði, líkamsburði, stellingum, hreyfingum, lykt, hraða andardráttar o.fl. Það er engin leið að komast hjá þessu, nema að halda fundinn í gegnum síma. Líkamleg nærvera okkar gefur óhjákvæmilega upplýsingar um okkur. Ég gerði mér því grein fyrir að mér tækist aldrei að útiloka þennan þátt alveg, en ég einsetti mér að gera hann eins lítinn og hægt er. Það vildi svo heppilega til að fyrsti miðillinn sem ég sat fund hjá passaði ágætlega við áformin mín. Hún var yfir sextugt og nærri blind. Hún heyrði heldur ekki vel, því hún hélt ég væri frá London. Ég andmælti henni ekki. Ég sat bara kyrr. Til þess að tæma hugann af hugsunum einbeitti ég mér að bólgnum öklum konunnar. Hún talaði um hitt og þetta og ekki neitt í u.þ.b. hálftíma, en svo sagði hún allt í einu: „Hvað í ósköpunum gerir þú?“ og var henni auðheyrilega brugðið. Svo bætti hún strax við „ekki segja mér það. Vandinn er bara að skilja þetta. Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt.“ Síðan sagði hún mér hvað hún skynjaði. 10

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.