Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Side 13

Morgunn - 01.06.1994, Side 13
MORGUNN Henni fannst ég vera að vinna í herbergi sem líktist þvottahúsi, með stórum hvítum þvottakörfum og ofan í þeim hringuðu sig svartir snákar, en samt voru þetta ekki eiginlegir snákar. Svo heyrði hún hræðilegt hljóð sífellt endurtekið vaaaaa-vúúúú, vúúúú-vaaaaa, og svo sá hún myndir sem hreyfðust afturábak og áfram. Og hún skynjaði eitthvað með gamaldags háa hatta. Þessu gat hún ekki pússlað saman. Henni geðjaðist ekki að þessu hljóði og snákunum. Hún sagði: „Þú ert aldeilis skrýtin náungi.“ Eg vissi nákvæmlega hvað það var sem hún skynjaði. Hún sá þama herbergið sem ég hafði nánast búið í síðustu vikumar, klippiherbergið þar sem við létum filmuna ganga afturábak og áfram á víxl sem framkallaði þessi hörmulegu hljóð. Myndin var „Lestarránið mikla“ og allir leikaramir gengu með háa hatta. Það var útilokað að þessi litla, hálfblinda gamla kona gæti vitað nokkuð um þetta. Mér leið undarlega þegar ég fór af þessum fundi og áætlanimar virtust skipta litlu máli. Eg vissi að þó svo að ég hefði ekki getað stjómað líkamshreyfingum mínum eða tónum raddarinnar og þó að hún hefði ekki verið hálfblind og getað lesið mig af útlitinu og l’ramkomu minni, þá hefði ég ekki getað haft áhrif á þessa skynjun hennar. Klippiherbergi, sem hún túlkaði sem þvottahús með snákum. Ekki margir í heiminum höfðu hugmynd um hvemig klippiherbergi liti út. Hvemig hafði hún fengið þessar upplýsingar? Ég sá ekki nema tvo möguleika. I fyrsta lagi þá gæti ein- hver hafa sagt henni frá því. Ég hafði pantað tímann undir öðru nafni, en þegar ég kom inn í bygginguna gæti einhver við afgreiðsluna hafa þekkt mig og sagt gömlu konunni hver ég væri og að ég ynni við kvikmyndir. Ég sá engan síma inni hjá miðlinum, en það var aldrei að vita. Hinn möguleikinn var að hún hefði dulræna hæfileika og að fyrirbærið ætti sér stoð í raunveruleikanum. 11

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.