Morgunn - 01.06.1994, Page 16
MORGUNN
Ég kom aftur tveim dögum síðar. Ég fékk fund að þessu sinni
hjá miðaldra konu sem klæddist skoskri ullardrakt og minnti á
hávaxna útgáfu af Miss Marple. Með staðfestu í röddinni til-
kynnti hún mér að ég væri frá eyjunni Malta, að ég væri einka-
bam og að ég ætti matvörufyrirtæki sem ég ræki. Einnig varaði
hún mig við því einhver í fyrirtækinu væri að svindla á mér.
/
Eg fór af fundinum dolfallinn. Konunni hafði skjátlast í
öllum atriðum. Hún hefði getað hitt á a.m.k. eitt atriði rétt af
einskærri tilviljun, en því var ekki til að dreifa í þessu tilfelli.
Vegna þess að ég var að leikstýra kvikmynd, hafði ég bæði bíl
og bílstjóra. Bílstjórinn minn, John King fékk áhuga á að vita
afhverju ég færi svona oft í þessi samtök.
„Hvað nákvæmlega er gert þarna Michael?“
„Það er fólk þama sem heldur skyggnilestra“.
„Segja þeir fyrir um framtíðina?“
„Stundum. Og stundum lýsa þeir þér og segja hvers konar
manneskja þú ert.“
„Veist þú ekki sjálfur hvers konar manneskja þú ert?“
„Það er athyglisvert þegar einhver sem þú þekkir ekki neitt
getur sagt þér það.“
„Og hafa þeir rétt fyrir sér?“
„Oftast, já.“
John var þögull um stund en sagði svo:„Trúir þú að einhver
geti sagt til um framtíðina?“
/ t /
Eg átti ekkert afdráttarlaust svar við þessu. Eg var ekki
kominn svo langt ennþá. Það hefði verið fáránlegt að halda því
fram að venjulegar útskýringar nægðu til að útskýra upp-
lýsingarnar sem ég hafði fengið á öllum lestrunum. Einn
miðill hafði sagt mér nöfnin á gömlu vinunum mínum í
Califomíu. Annar lýsti húsinu mínu og þeim lagfæringum sem
ég hafði gert á því. Enn einn lýsti áfalli sem ég varð fyrir í
þriðja bekk í skóla, þegar ég hafði sleppt kanarífugli kennarans
út úr búri sínu og hann týndist í loftræstikerfi skólans í meira
14