Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Page 27

Morgunn - 01.06.1994, Page 27
MORGUNN þekktastur iyrir. Hér verður lögð áhersla á að láta Harald sjálfan tala með beinum tilvitnunum og lesnir verða kaflar úr ræðum hans eftir því sem við á í þessari umfjöllun. Leitast verður við að tengja þessar ræður því trúarlega umhverfi og félagslega samhengi sem þær eru sprottnar úr. Sjálfur leggur Haraldur á seinni hluta ævi sinnar ekki mikið upp úr predikunarstarfí sínu fyrir 1914. Þetta sést best á því að hann vildi síðar á ævinni ekki láta birta neitt af þeim predikunum sem voru til frá þeim tíma er hann flutti guðsþjónustur í dómkirkjunni í Reykjavík.2 Ekki er þó svo að predikun hans frá þeim tíma hafi fallið í grýttan jarðveg. Asmundur Guðmundsson biskup segir frá því að fólk hafí á þessum árum einnig þyrpst í kirkjuna til að hlýða á hann.„Hann hreif hugi þess og náði á þeim djúpum tökum, enda þótt þau yrðu meiri og dýpri síðar meir,“ segir Asmundur.3 Afstaða Haralds til eldri predikana sinna í dómkirkjunni mótast að sjálfsögðu af þeirri áherslu og því mikilvægi sem hann gaf spíritismanum í boðun kristinnar trúar, enda segir hann sjálfur í formála að fýrri hluta predikunarsafnsins Árín og elífðin árið 1920 að: „Sé nokkuð nýtilegt í predikunarstarfi mínu og þessum ræðum, þá er það fýrst og fremst þaðan [þ.e. frá sálarrannsóknum] runnið“. Þær ræður sem varðveist hafa frá því fyrir 1914 sýna greinilega að ræðusnilld Haralds var ekki bundin við boðun spíritismans. Það er því full ástæða til að gefa þessum gömlu ræðum hans meiri gaum þótt hann gefi þeim sjálfur ekki háa einkunn. í safni hans sem áður er minnst á og sem að mestu leyti virðist hafa varðveist eins og hann sjálfur gekk frá því í pökkum, hefur hann sett flestar þessar ræður í pakka og merkt ýmist „Af-gamlar ræður“ eða „Gamalt msl“. Undir þessa einkunn urn fyrrihluta ræðumennsku Haralds er ekki hægt að taka. I þessum ræðum er bæði að finna hefðbundnar ræður í anda orþodoxíunnar og ræður þar sem áhrif frjálslyndu guðfræðinnar koma fram. Þar er einnig að finna ræður þar sem spíritisminn er kominn til sögunnar og hafa þær því mikið heimildagildi vegna þess að þær sýna hvemig Haraldur vann úr 25

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.