Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Side 37

Morgunn - 01.06.1994, Side 37
MORGUNN Þorsteins sýnir vel hve átökin voru hörð um afstöðu til trúar og kirkju um aldamótin. Það er líka athyglisvert að viðhorf einstakra manna breyttust mikið á þessum árum og sýnir það best hversu mikið byltingarskeið aldamótaárin vom í andlegu lífi þjóðarinnar. Vamarbarátta Haralds og félaga hans var samtímis háð á fleiri vígstöðvum. Hún var háð innan Góðtemplarareglunnar, sem þá var í miklum uppgangi og í Stúdentafélaginu. I síðamefnda félaginu skám Haraldur og félagar upp herör gegn kristindómsgagnrýninni og öllu því sem þeir töldu vera siðspillandi áhrif efnishyggjunnar. Þeir vom mjög viðkvæmir fyrir því að kristindómurinn væri hafður í flimtingum. Þegar Stúdentafélagið stóð fyrir skemmtun þar sem drykkjuvísur vom fluttar og vegið að helgi kristinnar trúar túlkuðu þeir það sem argasta guðlast. Haraldur sagði sig úr Stúdentafélaginu ásamt nokkmm samherjum sínum af þessum ástæðum. Þar með má segja að góður jarðvegur hafi verið kominn fyrir sérstakt Kristilegt stúdentafélag, en það var stofnað árið 1898. Asamt Haialdi var þar Einar Hjörleifsson, sem síðar tók sér eftimafnið Kvaran. Það var einmitt Einar sem fyrstur vakti athygli Haralds á sálarrannsóknunum og fékk hann til að taka þátt í miðilsfundum. Einar hafði á námsámm sínum snúist til and- kristilegrar stefnu Georgs Brandesar og mótast af raunsæisstefnu þeirri sem Brandes boðaði og hafði mótað viðhorf Þorsteins Erlingssonar, Guðmundar Hannessonar og fleiri menntamanna. Einar bjó um tíma í Kanada þar sem hann starfaði við blaða- mennsku. Fljótt eftir heimkomuna varð hann áhrifamikill ritstjóri og rithöfundur og samherji Bjöms Jónssonar síðar ráðherra. Lífsreynsla Einars hafði þá máð hina andkristilegu afstöðu úr lífsviðhorfi hans og leitaði hann á þessum ámm kjölfestu í kristindóminum. Einar og Björn Jónsson vom leiðandi menn innan Góð- templarareglunnar, sem segja má að hafi verið stórveldi í félagslífi og þjóðmálum á Islandi í upphafi þessarar aldar. Bjöm Jónsson var einnig leitandi maður á andlega sviðinu. Hann var meðlimur 35

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.