Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Síða 38

Morgunn - 01.06.1994, Síða 38
MORGUNN Swedenborgarkirkjunnar í Kaupmannahöfn, en henni hafði hann kynnst þar á námsárum sínum. Segja má að sú kirkja hafi sameinað andahyggju og skynsemistrú. Ásamt Haraldi vom það þessir tveir vinir og félgar Haralds, sem komu af stað þeirri hreyfingu sem spíritisminn varð á Islandi. Þeir vom allir mjög virkir þátttakendur í félags- og menningarmálum og glímdu allir hver á sinn hátt við spuminguna um siðferðisgmndvöll þess nýja þjóðfélags sem var í mótun á Islandi á þessum ámm. Allir sáu þeir hættuástand framundan ef áhrif kristninnar meðal landsmanna minnkuðu. Hvað Harald snertir má sjá þessa baráttu í predikunum hans áður en hann varð fyrir áhrifum frá spíritismanum. Vart er hægt að fínna betri heimildir um guðfræði og lífsviðhorf prests en safn predikana, einkum ef um er að ræða predikara sem tekur hlutverk sitt alvarlega og hefur þor til að takast á hendur þá glímu sem meginviðfangsefni predikunarinnar óhjákvæmilega er. Sú glíma felur í sér mikil átök einkum á tímum mikilla breytinga í guðfræðilegri hugsun og þegar endurskoðunar er þörf á stöðu kirkjunnar í samfélaginu. Aldamótin vom einmitt tími umbyltinga á þessum sviðum. í þeirri hringiðu stóð Haraldur Níelsson sem predikari og hann tók hlutverk sitt alvarlega og var frábærlega vel í stakk búinn til þeirrar glímu sem það fól í sér. 77/ varnarfyrir kristindóminn Séra Jakob Jónsson nemandi og fylgismaður Haralds í guðfræðilegum efnum sagði um hann í tilefni af aldarafmæli hans 1968: „Séra Haraldur var stórbrotinn maður í hugsun, og tilfinningar hans léku fjölbreytilegum strengjum, svo að það er engan veginn auðvelt að gefa sanna mynd af honum eða kynna hann þeirri kynslóð, sem nú lifir.“8 36 j

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.