Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Page 46

Morgunn - 01.06.1994, Page 46
MORGUNN eðlis. Talað var um guðlegar opinberanir, vilja og ráð Guðs almáttugs og fleira í þeim dúr. Það sést á fundargerðum félagsins að það kom aðallega í hlut Haralds að leiða trúarlega starfsemi Tilraunafélagsins þó svo að formaður félagsins Einar Hjörleifsson hafi einnig komið þar við sögu. Haraldur fór iðulega með bænir og hugleiðingar og hann predikaði við guðsþjónustur í félaginu, annað hvort í húsnæði félagsins eða á heimilum félagsmanna. Miðilsfundir og guðs- þjónustur félagsins voru lokaðar samkomur. Predikanir Haralds við þessi tækifæri voru því eingöngu ætlaðar meðlimum félagsins og þar er hann að tala yfir fólki sem deildi með honum áhuga á sálarrannsóknum. Framlag hans við þessi tækifæri var að tengja spíritismann kristinni trú og sýna fram á að fyrirbæri og kenningar spíritismans ættu sér hliðstæður í Biblíunni. Þegar haft er í huga að andstæðingar spíritismans vitnuðu einnig í Biblíuna máli sínu til stuðnings þá er það mjög athyglisvert að sjá hvemig Haraldur beitir ræðumennsku sinni og biblíuþekkingu í þessu augnamiði. Guðfræðingar brugðust ekki allir eins við þeirri kristindóms- gagnrýni og guðsafneitun sem sögulegar rannsóknir og kenning Darwins um uppruna tegundanna hafði í för með sér. Jón Helgason og Haraldur tileinkuðu sér frjálslyndu guðfræðina þótt þeir væm á andstæðri skoðun hvað varðaði gildi spíritismans fyrir kristna trú. Jón hafnaði því alfarið að þetta tvennt gæti farið saman, en vinfengi og félagskapur þeirra í millum hélst samt í mörg ár þótt upp úr syði á endanum. Til vom þeir guðfræðingar sem í baráttunni gegn trúleysinu drógu fram kenninguna um bókstaflegan innblástur ritningarinnar, þ.e.a.s. að hvert orð væri beinínis innblásið af anda Guðs, og nánast skrifað af Guði sjálfum, og þar væri því ekki að finna neinar þversagnir eða missagnir. Þannig vildu þessir bókstafstrúarmenn eins og þeir vom kallaðir í eitt skipti fyrir öll kveða niður draug efahyggjunnar. Bókstaf Biblíunnar settu þeir á móli allri mannlegri 44

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.