Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Side 48

Morgunn - 01.06.1994, Side 48
MORGUNN um efa sem beinist að ákveðnum atriðum í kenningunni svo sem útskúfunarkenningunni. „Það er einlægur efi“, segir hann, „sem sprettur af því að maðurinn fær ekki samrýmt sumar kenningar, sem haldið hefur verið fram í kirkjunni við skilning sinn á gæsku guðs“. Þetta er heilsusamlegur og nauðsynlegur efi að mati Haralds. En svo er það efinn sem eyðileggur gmndvöll að jákvæðri lífskoðun og steypir í glötun. í ræðu sem hann flutti við guðsþjónustu á Laugamesspítala árið 1910 skilgreinir hann þetta nánar: , Alvarlegasti efinn snertir ekki einstakar kenningar, heldur lífið sjálft. Það er efi um tilgang lífsins, efi um hvert tilveran stefni, hvort guð stjómi heimi þessum, og hvort guð sé góður. Svo langt getur efi trúrækins manns farið, að það verður honum sárasta hugarkvölin, að hann er ekki einu sinni viss um að guð sé til, né hitt að höfundur lífsins og allrar tilvemnnar sé góður. Fátt er alvarlegra en sálarstríð slíkra manna. Ég hefi ekki lesið neitt, sem grípur hugann annarri eins meðkend og alvöru eins og lýsingar manna, sem í slíkt hafa ratað, á sálarstríði þeiira. Hversu átakanlegt mundi vera að lesa lýsingu Jóhannesar skírara á sálarstríði hans, ef hann hefði ritað hana. En honum varð slíks vamað þama í fangelsinu. - Gætið vel að því: alvarlegasti efinn kemur aðeins fyrir hjá trúhneigðustu og trúræknustu mönnunum. Sá efi er nokkurs konar sjúkdómur trúarinnar - Það er sem sýki hafi gagntekið trúarlíf þess manns.“ 14 Að mati Haralds hefur það að efast um æðri tilvem gífurlegar afleiðingar íyrir lífskoðanir og siðferði manna. Skoðun hans er sú að það séu í raun ekki nema tvær lífsstefnur. Önnur miðar við æðri heim og hin ekki. Líf án vonar um andlegan vemleika, hið eilífa líf sem kristindómurinn boðar, er samkvæmt honum á valdi gróðahyggju og eigingimi og holdlegra fýsna. Allt er þetta afleiðing af því að fólk hefur misst sjónar af tilvist og vemleika hins andlega lífs. Önnur tilvera og æðri er það sem gefur jarðlífinu 46

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.