Bankablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 6
staklega þeir sem töldu að um lengingu á
vinnutíma væri að ræða, en stór meirihluti
vildi ganga inn á þetta fyrirkomulag og hika
ég ekki við að fullyrða, að hin rétta leið var
valin.
Almenn ánægja var meðal starfsfólks
bankanna um þessa lausn málsins. Laugar-
dagslokunin í nær fimm mánuði ársins var
orðin að veruleika. Mun þessa merka áfanga
verða minnzt sem einnar mikilvægustu rétt-
arbótar bankamanna og veit ég að enginn
telur eftir sér í dag þá lengingu á afgreiðslu-
tíma bankanna, sem kom í staðinn fyrir laug-
ardagslokunina. Nú er rætt um það í bönk-
unum, hvenær fimm daga vinnuvikan verður
allt árið í framkvæmd. Næsti áfangi er að
taka upp viðræður um þá framkvæmd í
áföngum og vonandi verður þess ekki langt
að bíða, að bankarnir og sparisjóðirnir verði
lokaðir alla laugardaga ársins. Noregur er
eina landið í Norðurálfu, sem ekki hefur enn
séð sér fært að taka upp fimm daga vinnu-
viku í bönkunum.
Það væri rangt að skilja svo við þetta mál
að minnast ekki á hlut forráðamanna bank-
anna í þessu stórmáli. Við sem höfum átt
hlut að viðræðum um þessi mál við bankana
á liðnum árum vitum vel, hve hér var
erfitt um vik og mörg voru ljónin á vegin-
um. Margir sem ekki þekkja til bankastarfs-
ins telja vinnutíma bankamanna smttan og
bankana of marga. Bankastjórninni er um-
hugað um heiður bankanna, vilja ekki skapa
„fordæmi", um eitt og annað. Voru andvígir
laugardagslokun, en góður skilningur á hög-
um bankafólksins og síðast en ekki sízt, að
fimm daga vinnuvika er það sem koma skal
réðu úrslitum málsins. Allir þeir, sem notið
hafa fimm daga vinnuvikunnar nú í sumar,
þakka viðsemjendum sínum góðan skilning
á málefnum starfsfólksins og vænta þess að
svo megi enn verða um alla framtíð.
GLEÐILEG JÓL!
Farsœlt nýtt ár!
BRÆÐURNIR ORMSSON H.F.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
ELDING TRADING COMPANY H.F.
GLEÐILEG JÓL!
Fursœlt nýtt ár!
SAMLAG SKREIÐARFRAMLEIÐENDA
GLEÐILEG JÓL!
Farsœlt nýtt ár!
KRISTJÁNSSON H.F.
HEiLÐVERZLUN
GLEÐILEG JÓL!
Farsœlt nýtt ár!
GLEÐILEG JÓL!
Farsœlt nýtt ár!
ULLÁRVERKSMIÐJAN FRAMTÍÐIN
4 BANKABLAÐIÐ