Bankablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 43
/ /
Nýjar embættisveitingar í Utvegsbanka Islands
Á þessu ári liafa verið ráðnir þrír starfsmenn Útvegsbankans í þýðingarmikil störf
i þágu bankans, og fagnar allt starfsliðið hversu vel hafi tekizt og ánœgjulegu samstarfi
við stjórnendur bankans. Hins vegar dylzt engum að margir bankamenn finnast i röð-
um starfsmanna, sem reiðubúnir eru til þess að leggja fram sitt lið bankanum til heilla,
og hafa til þess reynslu og menntun.
Loksins hefur þólitíkin lagt niður rófuna.
Þormóður Ögmundsson
var ráðinn aðstoðarbankastj.
Hann hefur starfað í bankan-
um í rúm 30 ár.
Aður hefur Þormóður ver-
ið árum saman aðallögfræð-
ingur Útvegsbankans, hægri
hönd bankastjórnar og hollur
viðskiptamönnum bankans.
Hann hefur leitað sérnáms
með bókalestri og ástundun
um lögfræðistörf sín og kann
skil síns starfs nteð ágætum.
Þormóður er mikill félags-
hyggjumaður, fábrotinn, en
fastur fyrir.
Hann hefur átt sæti í stjórn
S. í. B. og verið fulltrúi ísl.
bankamanna á erlendri grund.
Matthias Guðmundsson
var ráðinn útibússtjóri Út-
vegsbankans á Seyðisfirði. —
Hann hefur starfað í bankan-
um í 25 ár.
Matthías kom ungur til
starfa í Útvegsbankann. Hann
var fyrst ráðinn til sendistarfa.
Kom brátt í Ijós við ljúfleg
kynni, að kraftur var að baki
framavilja Matthiasar, vilji til
jtess að vinna sig áfram, enda
hefur vegur hans verið farsæll,
og fengur fyrir bankann að
eignast svo ágætan starfsmann.
Matthías hefur átt sæti í
stjórn Starfsmannafélags Út-
vegsbankans og unnið þar góð
störf.
Ólafur Helgason
var ráðinn útibússtjóri Út-
vegsbankans í Vestmannaeyj-
urn. Hann hefur starfað í
bankanum í 15 ár.
Ólafur Helgason hefur num-
ið hagfræði við skáskólann í
Kaupmannahöfn og einnig
urn skeið í Prag.
Hann hefur unnið í ýmsum
deildum bankans og leikur
hvert starf létt í höndum hans
og hugur fylgir máli. Hann
er góðum gáfum gæddur.
Olafur er varaformaður
starfsmannafélags Útvegsbank-
ans, skemmtilegur í samstarfi,
heill og einarður og hvers
manns hugljúfi.
BANKABLAÐIÐ 41