Bankablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 47
P. G. Bergström
framkvæmdastjóri N.B.S.
Á síðastliðnu vori þann 6. maí átti P. G.
Bergström framkvæmdastjóri Norræna
bankamannasambandsins sextugsafmæli.
Það má með sanni segja að P. G. Berg-
strom tilheyri ekki aðeins Svíþjóð, heldur öll-
um Norðurlöndum. Það eru áreiðanlega fáir
sem vinna betur og af meiri áhuga að sam-
norrænum málefnum en hann. Við getum
glaðzt yfir að hann skyldi fást til að taka
að sér þetta viðamikla starf að vera fram-
kvæmdastjóri NBS samhliða sínu aðalstarfi
en hann er framkvæmdastjóri Sænska banka-
mannasambandsins eins og flestir vita.
Ekki munu hér taldar upp vegtyllur og
margháttuð störf P. G. því ef það yrði reyr(?
mundi áreiðanlega margt gleymast. En P. G.
er sérstæður persónuleiki sem ekki gleymist
þeim sem honum hafa kynnzt. I ræðustól er
hann kröftugur og skemmtilegur enda hefur
hann mikil á þá sem á hann hlusta.
P. G. hefur heimsótt Island nokkrum sinn-
um bæði meðan hann var formaður sænska
Sigurður Örn scemir P. Bergström
gullmerki S.Í.B.
sambandsins og eins eftir að hann tók við
núverandi starfi. Samstarf okkar íslenzkra
bankamanna við hann hefur ávallt verið með
afbrigðum gott og eigum við honum margt
gott upp að unna. Því var það að SIB ákvað
að sæma hann gullmerki sambandsins, og af-
henti varaformaður sambandsins, Sigurður
Orn Einarsson, það á afmælisdaginn.
Með þessari síðbæru afmæliskveðju ósk-
um vér að gæfa og gengi fylgi honum í
starfi hans um alla framtíð.
Fréttir úr Seðlabankanum
Nokkrar stöðubreytingar urðu í Seðla-
bankanum á s.l. sumri. Jón G. Maríasson lét
af störfum 31. júlí, í hans stað var skipaður
Davíð Olafsson fiskimálastjóri. Björn
Tryggvason var skipaður aðstoðarbankastjóri
við Seðlabankann, Sigurður Orn Einarsson
skrifstofustjóri og Stefán G. Þórarinsson að-
stoðar aðalféhirðir.
Af vettvangi félagsmála má geta þess, að
Torfi Olafssyni var veittur kynnisfararstyrk-
ur, fór hann til Rússlands og dvaldi þar í tvo
mánuði við leik og nám. Skúli Sigurgrímsson
fór á námsstyrk ársins 1966 til Englands og
Danmerkur.
Starfsmannafélagið sendi tvo fulltrúa, þá
Sighvat Jónasson og Sveinbjörn Hafliðason,
til Stokkhólms á sameiginlegan fund starfs-
mannafélaga Seðlabankanna á Norðurlönd-
um. Grétar Áss Sigurðsson dvaldi í 6 vikur
hjá Finnlandsbanka nú í haust, og hófst þar
með þátttaka Seðlabankans í skiptivinnu nor-
rænna Seðlabanka.
Starfsmannafélagið efndi, sem áður, til
tveggja daga sumarferðalags, ennfremur var
á s.l. vori farin hópferð til skoðunar á fram-
kvæmdum við Búrfellsvirkjun.
BANKABLAÐIÐ 45