Bankablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 40
Bridgeþáttur
I vor lauk sveitakeppni í bridge á vegum
Sambands íslenzkra bankamanna, sem var
háð eftir tveggja ára hlé, í hinum glæsilegu
nýju húsakynnum S.I.B. að Laugavegi 103.
Þátttaka að þessu sinni var góð eða 8 sveitir
alls, þ. á m. 2 frá Búnaðarbankanum, 2 frá
Landsbankanum, 1 frá Samvinnubankanum,
2 frá Seðlabankanum og 1 frá Utvegsbank-
anum.
Sigurvegari að þessu sinni var A-sveit Bún-
aðarbankans með 38 stig, en hana skipa:
Anna Þórarinsdóttir,
Edda Svavarsdóttir,
Guðjón Jóhannsson,
Jón Sigurðsson,
Margrét Þórðardóttir,
Tryggvi Pétursson.
I öðru sæti var A-sveit Seðlabankans með
37 stig, og í þriðja sæti B-sveit Búnaðar-
bankans með 30 stig.
Stemmningin var góð meðal spilamanna,
og voru margir skemmtilegir leikir háðir.
Nokkur óvissa var um sigurvegarann til síð-
ustu umferðar. Það vildi svo skemmtilega til,
að í síðustu umferð spiluðu saman A-sveit
Búnaðarbankans og A-sveit Seðlabankans,
en þær sveitir höfðu mesta sigurmöguleika.
Búnaðarbankinn spilaði vel og hafði tölu-
vert yfir í hálfleik, og þó að Seðlabankamenn
tækju sig á í síðari hálfleik, dugði það ekki
og sigraði Búnaðarbankinn með 5 gegn 1.
Keppnin var, eins og fyrr er sagt, háð í
fyrsta sinn í hinum nýju húsakynnum S.I.B.
að Laugavegi 103, og er það til mikilla
hagsbóta fyrir bankamenn almennt að hafa
eigið húsnæði fyrir félagsstarfsemina.
Þau ánægjulegu tíðindi gerðust að Sam-
vinnubankamenn tóku nú þátt í fyrsta sinni
38 BANKABLAÐIÐ
í bridgekeppni S.Í.B., og er það mín einlæg
von að þeir slái ekki slöku við, heldur mæti
fílefldir á vori komanda til að hefna sín á
hinum bönkunum.
Landsbankinn spilaði að þessu sinni langt
undir getu og stafaði það af „manneklu".
Það er talið öruggt að ekki er hægt að ná
verulegum árangri hjá liði sem er í vand-
ræðum með mannskap og alltaf að láta menn
spila sem eru óvanir saman. Ef Landsbank-
inn læknar þessa meinsemd, spái ég því að
hann taki 1. eða 2. sæti í bridgekeppni S.Í.B.
á næsta ári.
Félagsstarfsemi bankamanna er af mjög
skornum skammti og bridgekeppni S.Í.B. er
viðleitni til að auka hana, og um leið tæki-
færi fyrir starfsmenn bankanna að kynnast
betur.
Það er mín einlæg ósk að bankamenn láti
ekki sitt eftir liggja og styðji félagsstarfsemi
S.Í.B. af heilum hug.
Bankarnir eiga marga góða bridgemenn
sem spila bridge heima hjá sér reglulega.
Þetta fólk vil ég hvetja eindregið til að veita
sínu viðkomandi starfsmannafélagi lið og
gefa kost á sér til að spila bridge fyrir hönd
viðkomandi banka í hinni árlegu sveita-
keppni Sambands íslenzkra bankamanna.
R. S.
í byrjun sept. 1967 var haldin Tvímenn-
ingskeppni í bridge á vegum Sambands ísl.
bankamanna. Sigurvegarar urðu þau Lilja
Guðnadóttir og Jón Friðsteinsson frá Seðla-
bankanum með 399 stig.
Nr. 2, Guðjón—Sigríður frá Búnaðarbank-
anum með 381 stig og nr. 3, Bragi—Jakob
frá Utvegsbankanum með 367 stig.
Þátttakendur voru færri en búizt var við
(20 pör) og voru frá Búnaðarbankanum,
Landsbankanum, Seðlabankanum og eitt par
frá Utvegsbankanum.