Bankablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 10
Helgarráðstefnan
á Akureyri.
metrum yfir sjávarmáli. Herbergi og svefn-
pláss biðu okkar. Var fljótlegt að koma fyrir
farangri. Síðan var sezt að kaffidrykkju og
rabbi. Ahugi var svo mikill fyrir morgun-
deginum að naumast gáfu menn sér tíma
til að renna niður kaffinu. Allir voru komn-
ir í háttinn fyrir miðnætti. Enginn gaf sér
tíma til að skreppa í bæinn og líta á gleði-
hús í höfuðstað Norðurlands.
Annars er bezt að fjölyrða ekki meir um
aðdraganda að ráðstefnunni, heldur ganga til
dagskrár:
Föstudaginn 15. sept.:
Flogið frá Reykjavík kl. 20.45. Kl. 22.00
sameiginleg kaffidrykkja og kynning í
Skíðahóteli Akureyrar.
Laugardagur 16. sept.:
Morgunkaffi kl. 8.30.
Kl. 9.30 Ráðstefnan sett af Hannesi Páls-
syni
Erindi: Stofnun, skipulag og störf S.I.B.,
Bjarni G Magnússon.
Erindi: Eftirlaunamál starfsmanna banka
og sparisjóða, Guðjón Hansen trygginga-
fræðingur.
Kl. 12.00: Hádegisverður.
Kl. 13.00: Erindi: Skipulag ogstörf norska
bankamannasambandsins, Gunnar Casper-
sen, aðstoðarframkvæmdastjóri NBF.
Kl. 14.30: Þátttakendum skipt í þrjá um-
ræðuhópa.
Kl. 16.00: Kaffihlé. 16.30: Framhaldið
umræðum.
Kl. 20.00: Kvöldverður í boði bankanna
á Akureyri.
Sunnudagur:
Kl. 9.00 Morgunkaffi.
KI. 10.30 Niðurstöður umræðuhópanna
ræddar sameiginlega.
Kl. 12.00 Hádegisverður.
Kl. 13.30 Akureyri og nágrenni skoðað.
Kl. 22.15 Flogið til Reykjavíkur.
Eins og sjá má á dagskrá ráðstefnunnar er
mikið verk framundan og hver mínúta setin.
Kom það og á daginn að ekki mátti tíminn
vera naumari til að gera verkefnunum full
skil. Dagskrá var að mestu fylgt, nema hvað
nokkuð dróst að setja ráðstefnuna um morg-
uninn. Það var þó ekki af því að menn
væru ekki snemma uppi. Hver einasti maður
var mættur fyrir auglýst morgunkaffi. Voru
8 BANKABLAÐIÐ