Bankablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 17
ÞÓRUNN BJÖRGÚLFSDÓTTIR:
Námskeið í Bergendal 1967
Það var glaðleitur hópur, sem kom saman
á Centralen (aðaljárnbrautarstöðinni) í
Stokkhólmi sunnudaginn 15. október kl.
18.00 til að taka þátt í bankanámskeiði, sem
stofnað var til af Svenska Bankmannaför-
bundet vikuna 15.—21. október 1967. Mætt-
ir voru 48 Svíar, 2 Danir, 2 Norðmenn, 1
finnskur fulltrúi og ég undirrituð frá Islandi.
Einnig var þar forsvarsmaður mótsins, Hild-
ing Sjöberg, og hans hægri hönd, Sven Gösta
Liljekvist. Var okkur pakkað upp í bíla og
ekið sem leið lá norður úr Stokkhólmi til
Bergendal, sem er 15 km norðan borgarinn-
ar. Tók ferðin furðu langan tíma, en eftir
því sem ég minntist frá fyrri veru minni á
þessum slóðum var slíkur spölur ekinn á all
skömmum tíma. En nú er öldin önnur, kom-
inn hægri handar akstur og hámarkshraði
40 km innan borgarinnar, en 70 km fyrir
utan. Til skólans komumst við samt sem
áður og var byrjað á að koma hverjum í sitt
herbergi, en allt var mjög vel undirbúið í því
efni. Síðan var veitt te og brauð og eftir það
hófst inntakan á námskeiðið, sem var all
kyndug, minnti helzt á inngöngu í stúku af
einhverju tæi, en eftir því skemmtileg. Var
hver og einn kallaður fram og kynntur, hengt
á hann nafnspjald með stóru og litríku letri
og síðan klappað með klappmerki vikunnar.
Vakti allt þetta mikla kátínu, og var fólk
svo fram eftir kvöldi að kynnast og þá meðal
annars stiginn dans, en töluvert var sú íþrótt
iðkuð á kvöldin þessa viku, því fólkið var
ungt og kátt, og kom öllum vel saman svo
sem vera ber meðal skólafélaga.
Alvaran byrjaði svo strax í býtið næsta
morgun. Mætt í morgunmat kl. 8.30 og í
fyrsta fyrirlestur kl. 9. Námskeiðið byrjaði
alla daga kl. 9 og stóð oftast fram yfir kvöld-
mat að undanteknu hádegis- og kvöldverðar-
hléi. Ekki tel ég ástæðu til að geta sérstaklega
um hvert einstakt efni, sem fram kom. Fjall-
aði námskeiðið í heild um starfsemi banka-
fólks, fræðslumöguleika þess innan bank-
anna, rétt þess og skyldur. Við gestirnir frá
hinum Norðurlöndunum vorum strax mánu-
dagskvöldið látnir gera grein fyrir fyrirkomu-
lagi og uppbyggingu kerfa okkar banka-
mannasambanda, hver frá sínu landi. A eftir
flutti formaður Svenska Bankmannaför-
bundet (SBfm.) P. B. Bergström tölu og
rakti samvinnu bankamanna Norðurland-
anna og alþjóðasamvinnu bankafólks yfir-
leitt.
Okkur meðlimunum var skipt niður. Fyrst
í tvo hópa, a og b, og síðan í smærri flokka
eftir störfum og þörfum. Fékk svo hver
hópur verkefni til úrlausnar, oft hver sitt,
en stundum sama verkefnið. Ekki komu alltaf
sömu úrlausnir svo sem geta má nærri enda
sjónarmiðin misjöfn. Til gamans má geta
eins slíks verkefnis: Einn daginn var b flokki
skipt í þrjá hópa og samningar settir á svið
milli bankastarfsfólks annars vegar og
bankastjóra og fulltrúa bankanna hins vegar.
Þriðji hópurinn, sem í voru fimm manns, var
svo sáttanefnd, ef til þyrfti að taka. í honum
hafnaði ég. Byrjuðu fulltrúar starfsfólks með
að bera fram kröfur um kjarabætur eins og
vera ber, og fengu bankastjórar þær til athug-
BANKABLAÐIÐ 15