Bankablaðið - 01.12.1967, Page 18
Hópmynd frá Bergendal.
unar og komu með gagntillögur, og fór þetta
allt fram svo sem í fullri alvöru væri og gekk
fram eftir degi. Mín nefnd hafðist vart að
fyrr en um eftirmiðdaginn, er allt fór í strand,
og samkomulag náðist ekki um tvö atriði.
Vildi hvorugur aðili gefa sig, þóttust ekki
geta gengið lengra og kom þá til okkar kasta.
Tókst okkur vel að vonum og með listilegum
hætti að koma á sættum. Höfðu allir gaman
af eftir á og jafnvel meðan á deilunum stóð,
en sænskt bankafólk hefur verkfallsrétt, svo
mikið var í húfi að samningar tækjust. Þetta
kvöld fengum við tilsögn í framsagnarlist
hjá Ake Nygren, merkum manni á sínu
sviði. Tjáði hann mér á eftir, að hann hafi
haft okkar ágæta óperusöngvara Guðmund
Jónsson í læri, þegar hann nam við Stokk-
hólmsóperu fyrr á árum.
Miðvikudaginn var unnið til hádegis, en
frí eftir það. Síðan var farið með rúm inn í
16 BANKABLAÐIÐ