Bankablaðið - 01.12.1967, Side 37
Helgarnámskeiðin, a. m. k. í Noregi, eru
haldin einhvers staðar á fjallahóteli eða ann-
ars staðar þar sem þátttakendurnir geta gist
um nóttina. Námskeiðin byrja þá á laugar-
deginum með fyrirlestrum og æfingum í
ræðumennsku til kl. 8 um kvöldið. Þá er
matazt og síðan er kvöldið frjálst. A sunnu-
deginum er þátttakendum skipt í grúppur og
þeir látnir vinna úr ýmsum verkefnum. Síð-
an safnast allir saman og ræða niðurstöður
nefndanna. Kvöldnámskeiðin eru hins vegar
haldin í borgunum sjálfum og eru yfirleitt
2 kvöld í viku, samtals 10 kvöld 2 tíma í
senn. Mikið var deilt um það á fundinum
hvort formið væri heppilegra. Svíarnir, og
þá aðallega Stokkhólmsbúar, telja kvöld-
námskeiðin mun vænlegri til árangurs, en
Norðmönnum hefur tekizt bezt með helgar-
námskeið. I Stokkhólmi hefur lítil aðsókn
verið að helgarnámskeiðum en góð að kvöld-
námskeiðum. Reynsla Norðmanna er alveg
gagnstæð. Dagfinn Kolstö frá Noregi sagði
okkur frá 30 manna námskeiði, sem haldið
var hjá þeim, þar sem helmingur þátttak-
endanna var konur, þar af níu giftar. Þær
töldu allar að þeim hefði verið ómögulegt
að fara á kvöldnámskeið, en mun auðveld-
ara að fara á helgarnámskeið. Svona eru nú
eiginmennirnir í Noregi skilningsgóðir! Að
aflokinni ráðstefnunni var ungu fólki frá
Malmö og nágrenni boðið til þess að við gæt-
um kynnzt þeirra viðhorfum. Þar kom í ljós,
að flestir, sem tóku til máls, töldu helgar-
námskeiðin heppilegri.
Kostnaðarhlið námskeiðanna.
I Svíþjóð eru þátttakendurnir á námskeið-
unum látnir greiða S. kr. 25,— hver í inn-
ritunargjald og töldu þeir, að þessi námskeið
séu svo þroskandi fyrir fólkið að það sé
engin goðgá að láta það borga þátttökugjald.
Fulltrúar hinna sambandanna töldu fráleitt
annað en samböndin greiddu allan kostnað
af námskeiðunum, enda væri þetta góð fjár-
festing fyrir samböndin.
Ég hef hér stiklað á stóru, til þess að gefa
hugmynd af því, sem rætt var á ráðstefn-
unni. Hins vegar hef ég sleppt ýmsum at-
riðum, sem varla skipta máli fyrir okkur enn-
þá. Ég tel tvímælalaust að námskeið í lík-
um dúr og ég hef lýst hér að ofan væru
gagnleg fyrir okkur líka og þá teldi ég að
leggja bæri áherzlu á að kenna fundarstjórn
og ræðumennsku.
Ef stjórn SIB hefur áhuga á að koma á
slíkum námskeiðum, er ég reiðubúinn að að-
stoða við undirbúning og framkvæmd þeirra.
GLEÐILEG JÓL!
Farsœlt nýtt ár!
KR. ÞORVALDSSON & CO.
GLEÐILEG JÓL!
Farsœlt nýtt ár!
SÆLGÆTISGERÐIN OPAL H.F.
GLEÐILEG JÓL!
Farscelt nýtt ár!
DRÁTTARVÉLAR H.F.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
HAMPIÐJAN H.F.
BANKABLAÐIÐ 35