Sindri - 01.10.1920, Page 44
38
FRÁ BORÐI RITST]ÓRANS
SINDRI
var hjer á landi. Hugsum vjer að þetta muni flestum gleði-
fregnir, því þær eru ekki gripnar úr lausu lofti, heldur
bygðar á vísindalegum rannsóknum. — Um einkaleyfi hefir
lítið verið ritað í íslensk blöð. Vonum vjer því að mörgum
muni þykja mikill fróðleikur í ritðerð Guðm. sál. Waage, um
verndarbrjef og einkaleyfi. Atti ritgerð þessi að vera upp-
haf fleiri ritgerða um sama efni, en því miður entist höfund-
inum ekki aldur til þess að koma þeim frá sjer. Er mikil
eftirsjá í Guðm. sál. og lætur hann eftir sig skarð er lengi
mun standa ófylt. — Enda þótt sumum hjer í Reykjavík sje
illa við gasljósið, ráðleggjum vjer samt mönnum til að lésa
ritgerð ]óns Egilssonar, þar sem saga gaslýsingarinnar er
rakin í helstu dráttum. Ritgerðin nær ekki eingöngu yfir
kolagasljós, heldur allar tegundir gasljósa frá fyrstu tímum.
Loks viljum vjer benda lesendum á auglýsingarnar í ritinu,
því í þær er einnig mikið að sækja. Er það leiðinlegur mis-
skilningur sem hefir fest sig í heila sumra manna hjer á landi,
að sjálfsagt sje að lesa aldrei auglýsingar þær sem birtast i
blöðum og tímaritum. En auðvitað kemur þetta þeim sjálfum
í koll, því við það fara þeir á mis við ýms góð tækifæri.
SlNDRI flytur ekki auglýsingar frá öðrum en góðum og á-
byggilegum »firmum«, svo að vjer getum fullvissað lesendur
um að auglýsingar þær er standa í þessu hefti eru ekkert
skrum. Ennfremur yonum vjer að leiðarvísir sá, sem er fremst
í tímaritinu geti komið mönnum að miklum notum við að
finna hvar þeir geta fengið ýmsar vörutegundir er þá vantar.
I næsta hefti hefst nýr greinaflokkur, fyrir laghenta menn.
Verða þar leiðarvísar um ýmiskonar smíðar og annað er menn
geta sjálfir leyst af hendi í heimahúsum. Auk þess sem menn
geta sparað sjer mikið fje með slíkri heimilisiðju, er hún
ágætis ráð til þess að láta tómstundirnar líða.