Bankablaðið - 01.12.1987, Síða 17
Erlent samstarf
17
StjómarfundurNBU íReykjavík:
Verkfallsaðstoð aukin í 100 milljónir sænskra króna
Tuttugu og tveir sátu stjórnarfund Norræna bankamannasambandsins, sem haldinn
var í húsakynnum SÍB að Tjarnargötu 14. Fyrir miðri mynd eru fulltrúar SÍB á fundinum,
Sólveig Guðmundsdóttir.Hinrik Greipsson, Guðjón Skúlason og Einar Örn Stefánsson.
Jan-Erik Lidström, framkvæmdastjori NBU
(t.v.) og Fritz P. Johansen, forseti sambands-
ins.
Á stjórnarfundi Norræna banka-
mannasambandsins í Reykjavík 3. og
4. nóv. sl. gerðist það helst markvert,
að samþykkt var aukin verkfallsaðstoð
Staðreyndir um FIET
★ FIET hefur innan sinna vébanda 248 launþegasambönd, með samtals tæp-
lega 9 milljónir félagsmanna í 93 löndum.
FIET skiptist í fjögur svæðissambönd:
★ AFRO-FIET (svæðissamband fyrir Afríku).
★ APRO-FIET (svæðissamband fyrir Asíu og Kyrrahafseyjarnar).
★ EURO-FIET (svæðissamband fyrir Evrópu).
★ IRO-FIET (svæðissamband fyrir Norður-, Mið- og Suður-Ameríku).
Samsetning stjórnar heimssambandsins ákvarðast fyrst og fremst af land-
fræðilegum ástæðum. Aðildarlöndunum er skipt í 11 heimshluta, og hver þeirra
hefur ákveðinn fjölda stjórnarmanna, sem aftur miðast við fjölda félagsmanna
á svæðinu.
Að auki skiptist FIET í allmarga starfsgreinahópa með eigin stjórn og sjálf-
stæð verkefni. Helstir þeirra eru bankastarfsemi, verslun, tryggingar, iðnaður,
almannatryggingar og heilbrigðismál. Þá má nefna vinnuhópa, m.a. einn fyrir
starfsmenn í stjórnarstörfum og annan fyrir konur.
Meginmarkmið FIET eru þessi, samkvæmt lögum samtakanna:
★ að vinna að samfélagsskipan, þar sem allir eru frjálsir og jafnréttháir og
nýta í sameiningu auðlindir jarðarinnar,
★ að vinna að alþjóðlegri samstöðu með því að binda samtökum frjáls
starfsmannafélög, án tillits til þjóðernis, kynþáttar eða trúarbragða,
★ að berjast gegn efnahagslegri og félagslegri misnotkun á öllum sviðum;
að vinna gegn kynþáttamisrétti; að verja og efla efnahagslega, félagslega
og menningarlega hagsmuni félagsmanna sinna og koma fram fyrir þeirra
hönd í öllum alþjóðastofnunum og alþjóðasamtökum, sem vinna að fram-
gangi hagsmunamála þeirra.
Með tilliti til þessara meginmarkmiða er síðan sett saman alþjóðleg stefnu-
skrá og starfsáætlun, sem endurskoðuð er með jöfnu millibili.
til sambanda NBU úr 25 milljónum
sænskra króna í 100 milljónir, sem
„fyrsta hjálp“ til aðildarsambands, sem
á í verkfallsaðgerðum. Talið er að verk-
fallssjóðir aðildarfélaga NBU fari yfir
1 milljarð sænskra króna nú um ára-
mótin. Ekki þarf að fara mörgum orðum
um hve gífurlegur styrkur það er fyrir
SÍB að vera aðili að svo fjárhagslega
sterkum hópi, ef einhverntíma kemur
að því að bankamenn á íslandi þurfa að
heyja erfiða og kostnaðarsama verk-
fallsbaráttu.
Á þessum stjórnarfundi NBU var
einnig rætt mikið um fræðsluráðstefnu
NBU í Reykjavík 24. til 26. ágúst 1988.
Reiknað er með um 100 þátttakendum
frá öllum Norðurlöndunum, bæði frá
bönkunum sjálfum svo og samböndum
bankamanna. Yfirskrift ráðstefnunnar
verður „Góð starfsmenntun - besta
starfsöryggið“.
Lögð var fram skýrsla um þróun úti-
búanetsins hjá hverju landi fyrir sig og
ákveðið að vinna áfram að tölulegum
upplýsingum varðandi það og jafn-
framt að vinna skýrslu um launakerfi
bankamanna í hverju Norðurlandanna.
Margt fleira var á dagskrá, sem telst
til hefðbundinna stjórnarstarfa, svo
sem fræðslustyrkur NBU, ráðstefnur
1988, alþjóðlegt samstarf í FIET, fjár-
málNBU o.fl.
Félagsmenn norrænu bankamanna-
samtakanna eru nú samtals 164.629 og
hefur þeim fjölgað um rösklega 5 þús-
und á þessu ári.