Bankablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 23
Frœðslumál
23
Þatttakendur a Trunaðarmannanamskeiði III i „meðferð" hjá Gunnari Árnasyni, sálfræðingi.
aldsson sá um, voru flutt erindi um
ýmis málefni er varða bankamenn nú
og í framtíðinni. Benedikt Guðbjarts-
son fræddi þátttakendur um Banka-
mannaskólann, starf hans og framtíðar-
áform. Ásgeir Eiríksson ræddi um fjár-
mögnunarleigur og starfsvettvang
þeirra. Björn Arnórsson var með þátt,
sem hann nefnir Hvað er vísitala?
Öryggismálum var einnig sinnt á nám-
skeiðinu og var Sigtryggur Jónsson með
erindi um áhrif afbrota í bönkum á sálar-
heill starfsmanna. Þátttakendur fengu
einnig kennslu í framsögn og var sá
þáttur í umsjón Kristínar Á. Ólafsdóttur.
í lok námskeiðsins voru síðan stjórn og
starfsmenn SÍB tekin á beinið.
Af þessu sést að dagskrá á þessum
námskeiðum er mjög f jölbreytt og leit-
ast er við að fjalla um mál sem eru
ofarlega á baugi í hvert sinn. Nám-
skeiðin þarf stöðugt að endurskoða
þannig að þau verði lifandi og þátttak-
endur öðlist þar reynslu og þekkingu
til þess að verða áhugasamir og hæfir
trúnaðarmenn.
Stjórn SÍB hefur samþykkt að haldin
verði sérstök félagsmálanámskeið fyrir
konur. Fyrirmynd námskeiðsins er nám-
skeið sem norska bankamannasamband-
ið hefur haldið fyrir konur og hefur j
það námskeið verið vel sótt og orðið I
mjög vinsælt meðal norskra banka-
kvenna.
Fræðslunefnd hefur lagt til að trún- j
aðarmannanámskeið III verði ekki I
haldið árið 1988. Ástæðan fyrir þessu
er sú að flestir þeir trúnaðarmenn, sem
lokið hafa námskeiðum I og II áttu þess
kost að sækja námskeiðið sem haldið
var í febrúar sl.
Árið 1986 voru trúnaðarmenn í fyrsta
sinn kosnir eftir nýjum reglum til
tveggja ára og rennur sá tími út í febr-
úar nk. Þá kemur í ljós hvort mikil
skipti verða á trúnaðarmönnum, eða
hvort menn gefa kost á sér og njóta
trausts vinnufélaganna til að gegna
starfinu áfram. Það er mjög jákvætt, ef
trúnaðarmennirnir, sem hafa gengið í
gegnum trúnaðarmannafræðslu SÍB og
öðlast reynslu í starfi, gefa kost á sér
áfram. Þannig mundi fræðslustarf SÍB
breytast og hægt væri að beina því inn
á aðrar brautir, t.d. mætti hugsa sér að
beina fræðslunni meira að hinum al-
menna félagsmanni úti í bönkunum.
Sendum Sambandi íslenskra bankamanna og félögum
þess bestu óskir um gleðilegjól ogfarscelt komandi ár
Eyrasparisjóður
Sparisjóður Akureyrar
Sparisjóður Norðf jarðar
Sparisjóður Sigluf jarðar
Sparisjóður Svarfdæla
Sparisjóður V-Húnavatnssýslu
Sparisjóður Ólafsvíkur