Bankablaðið - 01.12.1987, Side 26
35. ÞING SÍB
35. þing Sambands íslenskra banka-
manna var haldið á Hótel Loftleiðum
dagana 9. og 10. apríl. Þing sambandsins
eru haldin annað hvert ár og fara þau
með æðsta vald í öllum málum þess. 65
fulltrúar frá öllum sautján aðildarfé-
lögum SÍB sátu þingið, auk nokkurra
áheyrnarfulltrúa. Að auki sat stjórn og
varastjórn SÍB þingið, starfsmenn og
gestir, en meðal þeirra voru nokkrir
fyrrverandi formenn sambandsins og
fulltrúar bankamannafélaga á Norður-
löndum, auk framkvæmdastjóra NBU,
Norræna bankamannasambandsins. Við
setningu þingsins fluttu fulltrúar ASÍ,
BSRB, BHM og FFSÍ stutt ávörp og
kveðjur.
Fjölmörg mál voru rædd á þinginu.
Kjaramálin voru efst á baugi, enda voru
bankamenn þá enn með tausa samninga
frá áramótum. Samningar tókust svo
undir lok mánaðarins, 29. apríl.
Margar ályktanir voru samþykktar á
þinginu, m.a. um fræðslumál og endur-
skipulagningu Bankamannaskólans, fram-
haldsnám og námskeið fyrir banka-
menn og almenning., Þá er lögð áhersla
á að Bankamannaskólinn skipuleggi fjar-
kennslu, sem nýtist bankamönnum utan
Reykjavíkursvæðisins. Samþykkt var
ályktun, þar sem stjórn SÍB er hvött til
að beita sér fyrir breytingu á löggjöf
um banka og sparisjóði, þannig að starfs-
menn fái tvo fulltrúa í bankaráð með
fullgildri aðild.
í ályktun um jafnréttismál segir, að
grípa þurfi til róttækra aðgerða í þeim
málum. Vakin er sérstök athygli á niður-
stöðum samnorrænnar launakönnunar
1986, þar sem fram kemur að launamun-
ur milli karla og kvenna hefur aukist
frá 1983, úr 12,4% í 13,7%. Bent er á
ýmsar leiðir til að stöðva þessa öfug-
þróun. Loks má nefna að samþykkt var
tillaga um að samið yrði um sambæri-
legt fæðingarorlof fyrir feður og mæð-
ur.
Félagsmenn Sambands íslenskra
bankamanna eru nú um 3500. Átjánda
aðildarfélagið hlaut inngöngu á þing-
inu. Það er VIST, félag starfsmanna
VISA íslands, með fjórtán félagsmenn.
Langstærsta aðildarfélag SÍB er félag
starfsmanna Landsbanka íslands, með
1123 félagsmenn, eða nær þriðjung
allra bankamanna.
Þingið kaus nýja stjórn SÍB til næstu
tveggja ára. Miklar breytingar urðu á
stjórn og varastjórn. Aðeins tveir frá-
farandi stjórnarmanna sitja í nýju
stjórninni, Hinrik Greipsson formaður
og Sólveig Guðmundsdóttir annar vara-
Hér sitja við sama borð fulltrúar frá Bunaðarbankanum, Verslunarbankanum, Þjóðhags-
stofnun og Seðlabankanum.
Þingfulltrúar heimsóttu Bankamannaskolann í nýju húsnæði. Hér er verið að kynna sér
tölvumálin og þau virðast hreint ekki leiðinleg, ef dæma má af svip f jórmenninganna.