Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Blaðsíða 21

Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Blaðsíða 21
ÚTVARPSTIÐINDJ 357 J}ó(a(eih ri it: Jólasveinninn talar við börnin ■bcS GÓÐIR BARNATÍMAR hafa verið hafö- ir í útvarpinu á hverjum jólum undan- farin ár. Hefur þá meðal annars komið frarn jólasveinn og talað við börnin. Hefur fullorðnum, ekki síður en börnum þótt gaman að þessum leik. Hór fer á eftir einn leikurinn og rná vera að á nœstu jólum verði fluttur þáttur líkur þessum. Þœttinum er skift í tvo flokka. Er annar fluttur á jóladag, en hinn annan jóladag. Jólasveinninn (bankar á dyrnar): Ne- ei, komið þið nú marg-marg-marg-bless- uð og sæl, elsku ungarnir mínir! Lifand- is ósköp og skelfing er ég feginn að sjá ykkur- (Heilsar börnunum). Komdu blessaður Gvendur minn, og krossbless- uð, Gunna mín, og þið öll! Ég myndi rembingskyssa ykkur öll, ef þið væruð ekki svona mörg, eins og mý á mykju- skán. (Illær og púar). Æ, ósköp er mað- ur nú þreyttur og svangur. Eigið þið nokkuð hangikjöt? Börnin: Nei, bara epli og súkkulaði. Jólasv.: Uss, svei svoleiðis hégóma. En eklci vænti ég að þið ættuð hákarl og brennivín, bara duggunarlítið bragð? Börnin: Uss, svei attan, svoleiðis eig- urn við aldrei. Jólasv.: Æi, nei, nei, ég veit svo sem að menn eiga engan undirstöðumat nú á dögum. Áður áttu karlarnir fullar skemmur af hákarli, floti og harðfiski. En vitið þið annars nokkuð hvað skemma er? Ha? Nei, hvernig eigið þið að vita það, þessi blessuð himpingimpL Nei, sko sjáið þið, i skemmunni sinni áttu gömlu mennirnir í sveilinni allan sinn mat og þar var nú gaman að koma fyrir okkur jólasveinana. Þar voru ó- teljandi kæfubelgir, fullt af eldsúru nmjöri og — — — Börnin: (taka fram í) Súru smjöri. Oj, það hefur verið slæmt. Jólasv.: Slæmt! Já, svona eruð þið, pottormarnir ykkar! Þiö kunnið ekki að meta góðan mat! 0, blessuð verið þið, súrt smér er það bezta, sem ég bragða. Börnin: Eruð þið'ekki voðalega gráð- ugir jólasveinarnir? Jólasv.: 0, nokkuð svo. Viö viijurn hafa okkar mat og engar refjar. Ég er nú ósköp hófsamur. Ég læt mér nægja að sleikja innan pottana, ég er nefnilega hann Pottasleikir gamli. En þeir eru rniklu gráðugri bræður rnínir, hann Ket- krókur og hann Bjúgnakrækir, og ykkur að segja, þið rnegið engum segja það, þeir eru dálítið þjófgefnir líka, skamm- irnar þær arna. En heyrið þið, skinnin mín, haldið þið, að þið hafið garnan af því, að ég raulaði fyrir ykkur nokkrár vísur? Börnin: Já, góði gerðu það- Jólasv.: Já, jæja þá. En þið verðið þá, að taka kröftuglega undir. Takið undir, eins og hann Páll ísólfsson segir. (syng- ur) Hingað kominn er ég enn. Jæja, rnargt segið þið. Ég er nú orðinn kóf- sveittur að kyrja þetta við ykkur. Börnin: Heyrðu, þú sagðist lieita Potta- sleikir. Hversvegna sleikirðu innan pott- ana? Jólasv.: Hversvegna! Ekkert vitið þið, ræfils- anganórurnar! Ekkert er eins gott og skófir úr góðurn graut. Sérstak- lega eru góðar skófirnar á jólunum. Þá elda konurnar þennan líka fína, rúsinu- graut, do-do-ná-ná! Og stundum er ein og ein rúsina eftir á botninum- Það er nú aldeilis fengur, manneskja. En á ég að segja ykkur dálítið skrýtið, sem kom fyrir mig í gærkvöldi? Börnin: Já, góði segðu okkur eitthvað skemmtilegt.

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.