Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Blaðsíða 34

Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Blaðsíða 34
370 ÚTVARPSTÍÐINDI Eigendur einkabifreiða Hafið þér athugað að tryggja farþegana í bifreið yðar? Ef ekki, þá gerið það strax í dag. Á morgun getur það orðið um seinan. Trygginguna fáið þér hentug- asta hjá oss. Kynnið yður skilmálana. Hvergi jafn ódýr trygging- Ferðafólk! Ferðist ekki án þess að hafa slysatryggt yður áður. ó- höppin geta komið fyrir hve- nær sem er. Hjá oss fáið þér hentuga ferðatryggingu, ódýra örorku- og dánartryggingu. Bezta öryggið gegn afleiðing- um slysa er slysatrygging. Leitið upplýsingar hjá oss, síma Í074. T ryggingarstof nun ríkisins Slysatryggingadeild. eftir henni, þá skal ég segja þér hana eins og hún er“. „Þú veizt, að ég er sauðþrár“, hélt hann áfram. „í öllum listagreinum ætti þrákelkni að vera verðlaunuð. En oftast er það svo, að hún hefur bölvun í för með sér“. Hann drap í sígarettunni, kveikti í annarri og hóf sögu sína. „Ég var alinn upp á munaðarleysingja- hæli. Enginn vissi neitt um foreldra mína og enginn kærði sig heldur neitt um þá. Eftir því, sem ég bezt veit, hafði mér verið komið þangað af einhverjum, sem enginn þelckti. Á hælinu ákváðu þeir, að ég skyldi ganga á listaskóla og ganga þar undir próf- Þegar ég var 15 ára, var ég orðinn veikur af leiðindum út af þessum leiðu kjörum og strauk. Mitt fyrsta verk var að selja frakka, sem ég liafði fengið á hælinu. Hann hafði alltaf verið mér of stór. Fyrir andvirði hans dró ég fram lífið, þar til ég fékk stöðu sem sendill hjá Jebbe & Sonum, útgefendum og prenturum. Með hinum litlu launum mínum og smá aukavinnu, sem ég gat snapað mér út eftir vinnu- tíma, gat ég lifað. Einu sinni, þegar ég átti að vera að sópa geymsluna, kom gamli Jebbe að mér, þar sem ég var að teikna firmamerki fyrir fyrirtækið, og í stað þess að reka mig, þá fékk hann mér stöðu í teiknideildinni“. „Sem auglýsingateiknari?" spurði ég. „Ekki alveg“, leiðrétti hann, „frekar sem lærlingur. Til þess að verða full- gildur teiknari, þurfti að vinna í sjö ár sem lærlingur". ,,í sjö löng ár“, hélt hann áfram, „þurfti ég að vinna við öll störf sem tillieyrðu prentiðn. Níu árum eftir að ég hafði byrjað hjá fyrirtækinu, skömmu eftir að ég lauk námi, varð ég aðalteikn- ari Jebbes. Ég var öfundaður af mér eldri mönnum, en þá var ég bara reyslu- lítill og óhamingjusamur unglingur. — Jebbe var nefnilega bölvaður hrotti. Ég þori að hengja mig upp á, að honum líkaði vel við mig á vissan hátt og meinti ekkert illt með öllum ónotunum, sem hann hreytti í mig, en hann gerði mér lífið sannarlega að helvíti. Ef eitthvað

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.