Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Blaðsíða 31
ÚTVARPSTIÐINDI
367
Gísli Magnússon.
ÞRJ0 ÖNDVEGISRIT
frá
ísafoldarprentsmiðju h.f.
BIBLIAN, í útgáfu séra Bjarna Jónssonar, vígslubiskups, með 200 myndum
eftir Gustave Doré. Þetta eru allt heilsíðumyndir. Séra Bjarni Jónsson hef-
ur skrifað með myndunum þannig að efni Biblíunnar er rakið í stórum
dráttum. Bókin er rúmlega 400 blaðsíður að stærð og er þetta liin fegursta
útgáfa. Hvert heimili á landinu þarf að eignast og á að eiga þessa gull-
fögru bók, helgirit kristinna manna.
BLASKÓGAR, heildarútgáfa að ljóðum Jóns Magnússonar skálds. Jón Magn-
ússon er eitt hugðnæmasta skáld sem við íslendingar höfum átt, en Jón
lést ungur á síðastliðnu ári- Heildarútgáfan er í fjórum bindum og hefur
verið vandað af fremsta megni til útgáfunnar. — Þeir sem unna fögrum og
þróttmiklum Ijóðum verða að eignast þetta heildarsafn Jóns Magnússonar,
sem kvað af meiri innileika og jafnframt þrótti en flest önnur nútíma-
skáld okkar.
Ein vinsælasta bókin í gamla daga, Ijóóabókin SNÓT er komin út, að þessu
sinni verður hún í tveimur bindum og er í þeim allt, sem birtist í gömlu
Snót, án endurtekninga.
SNÓT átti geysimiklum vinsældum að fagna og hún á enn marga unnendur
og hún mun prýða skápa bókamanna og hyllur heimila um marga áratugi
enn. — Snót hefur lengi verið ófáanleg, en nú er úr þeirri vöntun bætt.
ÍSAFOLDARPRENTSMIDJA H.F.