Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Blaðsíða 32

Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Blaðsíða 32
368 ÚTVARPSTÍÐINDI Konungur á Kálfsskinni Þetta er nýjasta skáldsaga Hagalíns og mun fá þá dóma að hún sé bezta verk hans og heilsteyptasta. Þetta er stærsta skáldsagan, sem út hefur kom- ið á þessu ári, 519 þéttprentaðar síður og útgáfan öll mjög vönduð. Margar myndir eru í bókinni af sögupersónum og hefur Halldór Pétursson list- málari gjört þær. Skáldsagan „Konungur á Kálfsskinni" gerist á elliheimili í þorpi út á landi og segir sögu af gömlu fólki, lífsblekkingum þess, þrám, uppreisn gegn örlögum, ástum þess og baráttu fyrir því að vinna upp það sem því finnst að það hafi tapað í lífsins stríði. Aðalsöguhetjan er Eiríkur Athaníusson hákarladrepur og Kanaskelfir að vestan, sem gerist konungur í „Hælinu“ í krafti eins grammafóns og lóðadriftar- Hann hefur alla tíð unnið fyrir aðra, en vill nú gerast eigin herra — og láta aðra vinna fyrir sig.. Þessi persóna verður hverjum manni ógleymanleg, svo og margar aðrar: Jósef stjórnvitringur, Forstöðu-Guðrún, Sigga-Tóta, Sesselja í Skúrnum — og fjölda margar aðrar. Hér er um að ræða sérstætt stórbrotið verk, eina beztu íslenzka skáldsögu, sem skrifuð hefur verið, enda mun höfundurinn hafa unnið að henni í mörg ár. í raun og veru hefur Hagalín ineð þessari sögu sinni skapað heilt þjóðfélag og lýst því af frábærri snild. KAUPIÐ ÞESSA BÓK NÚ ÞEGAR. BÓKFELLSIJTGÁFAIM Sérstætt verk í íslenzkri skáldsagnagerö eflir Gu'öm. G. Ilagalín

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.